Ég kunni ekki baun á Linux fyrir minna en ári, en þá ákvað ég að demba mér í djúpu laugina og setja upp Gentoo. Ég er búinn að læra alveg helling á Linux síðan þá, en ég segi ekki að það hafi verið neinn dans á rósum, enda hef ég oft blótað yfir því hvað það er erfitt að fá suman vélbúnað til að virka almennilega. Það hefur þó alltaf tekist á endanum. Það eru þó til mörg góð HOW-TO á gentoo.org, sem hafa hjálpað mér gríðarlega, en það er afar auðvelt að fá hjálp með Gentoo. Þetta distró er...