Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Eru Hugar búnir að kíkja í nýju sundlaugina í Úlfarsárdal?

í Hugi fyrir 4 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg sammála því að Suðurbæjarlaug sé meiriháttar sundlaug og með þeim betri á landinu. Frábærir kaldir pottar. Geggjuð innrétting. Furðulegt gufubað. Mér finnst hellulagði göngustígurinn sem liggur þarna inn og í kringum gróðurinn frekar fyndinn líka, ég veit ekki alveg afhverju, finnst bara eitthvað pínu skondið að taka sér svona göngutúr afsíðis í sundi. Annars er Árbæjarlaug líka í miklu uppáhaldi. Ótrúlega góðir útiklefar þar. Flottir pottar. Glerhverlfingin er mjög tilkomumikil...

Re: Verbúðin

í Sjónvarpsefni fyrir 4 árum, 3 mánuðum
Já ég er sammála þetta eru mjög fínir þættir. Margar góðar senur í þeim. Þessi hversdagslega amfetamín stemninga er ótrúlega súr eitthvað, allir bara eitthvað að mönsa á einhverju spítti þegar eitthvað kemur upp á. Ég bjóst við að Sveppi myndi missa annan útlim eða lenda í einhverju slysi í þriðja þættinum en það fór ekki. Kannski næsta þætti samt. Söfnuðu þau ekki sögum frá fólki sem vann í þessu og skrifuðu þær inn í þáttinn? Mér finnst þetta allvega mjög vel heppnað.

Re: Hugi 2.0

í Hugi fyrir 4 árum, 3 mánuðum
Já sama hér. Bless bless facebook og góðan dag Hugi. Ætla sjálfur að reyna að henda inn vikulegum korkum, sjáum til hvernig það fer og hvort að fólkið flykkist ekki aftur hingað.

Re: Jólasmákökur

í Hátíðir fyrir 4 árum, 4 mánuðum
H(all)ó h(all)ó h(all)ó. Það er ekkert rosa mikil hefð fyrir því hjá mér að baka smákökur fyrir jólin en mér finnst samt mjög gaman að baka piparkökur. Ég hef nú aldrei prófað að búa sjálfur til Sörur en langar dáldið að prófa sko. Mamma er síðan yfirleitt dugleg að henda í svona döðlugott. Annars gerum við alltaf laufabrauð fyrir jólin sem er alveg frekar gaman en það eru nú ekki beint smákökur. Græna jólakakan er síðan ómissandi enda besta jólakakan. Hver er munurinn á randalínu og...

Re: Vetrarsólstöðuhátíð Wicca

í Hátíðir fyrir 4 árum, 5 mánuðum
Frábær áramótahefð segi ég nú bara. Veistu hvernig kökur þau eru með þarna í þessari athöfn? Og veistu eitthvað hvernig er haldið upp á hinar sólstöðurnar? Þetta er ekta nornasveimur!

Re: Bestu Íslensku Hlaðvörpin?

í Netið fyrir 4 árum, 6 mánuðum
Var aldrei neitt sérstaklega hrifinn af Sölva. Vera Illugadóttir með Í ljósi sögunnar og Leðurblökuna eru klassík. Bíó Tvíó er oft góð. Stundum dettur maður inn í Fílalag, þeir eru með góðar pælingar, þetta er fínn svona pælingaþáttur. En svo fara þeir of oft á einhverja rúnkandi orðaælufest og nafngreina fólk í svona 10 mínútur sem getur orðið þreytandi. Góðar pælingar samt og alveg gaman að hlusta á fáránlegar greiningar á góðum lögum. Kannski ekki beint hlaðvarp en Sumargjöf rásar 2 er...

Re: Já ok!

í Sagnfræði fyrir 5 árum, 1 mánuði
Já það er margt gott að gerast í hlaðvarpsheimi Íslands þessa dagana. Ég hef verið að detta dáldið inn í Fílalag. Var með einhverja smá fordóma gegn Bergi Ebba en hann er alveg með góðar pælingar. Kannski að maður kíki líka á Já ok!

Re: Covid 19

í Djammið fyrir 5 árum, 2 mánuðum
Heyrðu veistu Sirb02 ég er sko alveg sammála þér. Ég hef ekki farið á knæpu í fleiri mánuði. Og mikið hlakka ég nú til að fá aðeins að kitla kjuðana bráðum. Eða ég vona það allavega. Sjáumst.

Re: Er hægt að endurverkja Huga?

í Hugi fyrir 5 árum, 2 mánuðum
#BringBackHugi2021

Re: Góður byrjenda rafmagnsgítar og magnari

í Hljóðfæri fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Gætiru sett inn mynd af settinu? Eða a.m.k. gítarnum?

Re: Reiðhjóla dekkjaverkstæði.

í Hjól fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Annars er voða lítið mál að gera við sprungið dekk sjálfur. Ef þú kaupir þér bara svona "kit" þá spararu og lærir á Youtube hvernig á að gera þetta geturu notað peningana í eitthvað nytsamlegra, eins og fjólubláa sófann sem þig hefur alltaf langað í en hefur alltaf verið hræddur um að stjúpmóðir þín væri á móti.

Re: Leikur: Hvaða myndir?

í Kvikmyndir fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Neðra hægra hornið er myndin Clue (1985), þið kannist kannski við spilið Cluedo.

Re: óskast eftir sverði

í Hugi fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Klárlega ófrumleg nýting á sverði. Svo margir aðrir möguleikar: >Real Life Fruit Ninja >Kvensurnar fíla sverð >Ræna banka >Work-out >Skera grænmeti/ávexti >Skera kjöt >LARP

Re: Bítlaplötur og pink floyd plötur til sölu

í Gullöldin fyrir 14 árum, 1 mánuði
Hversu mikið krot erum við að tala um, því ég hef áhuga.

Re: Buy a Guitar: For Dummies

í Hljóðfæri fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Svona 30-40 þús helst. Er samt til í að borga kannski aðeins meira ef hann er þess virði.

Re: Kids cage fighting

í Tilveran fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Ætli pabbi hans monti sig af þessu? t.d. Pabbi1: Hvað gerir sonur þinn? Pabbi2: Hann æfir badminton. Pabbi1: Núnú, minn Cage Fighter!

Re: BÓLGIÐ EYSTA !! HJÁLP !!!!

í Heilsa fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Vinur minn lenti í svipuðu þar sem hann var eitthvað að flippa i rólum og þegar hann kom heim var eistað hans frekar bólgið. í ljós kom að það hafði snúist upp á eistað á honum eða eitthvað og hann þurfti að fara í aðgerð til að laga þetta.

Re: Grettis Saga

í Bækur fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Í hvaða skóla ertu og hvenær skrifaðiru bókaskýrsluna? er einmitt sjálfur að lesa hana og vil bara vera vissari um að engar grunsemdir vakni hjá kennurum. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok