Vá flott hjá þér að ná í hana á bókasafninu strax! Ég hlakka mikið til að lesa þessa bók, ég er búin að lesa allar bækurnar eftir Arnald, nema Napóleonskjölin , það virkaði ekki spennandi á mig umfjöllunarefnið í þeirri bók. Var að klára fyrstu bókina hans, Synir duftsins, og hún var mjög spennandi og skemmtileg. Ég hef fengið bækur eftir Arnald í jólagjöf síðustu tvö ár, og verð víst að bíða eftir jólunum :) Kveðja Estro