Fugl, svo fíngerður og smár
bjartur og lokkandi
eins og tunglið sem skín
rauður og tignarlegur
eins og sólin sem rís

flaug inní líf mitt
sem stormur
umturnaði öllu
hulan féll

söng mér lag
sem lyfti mér upp

söng mér lag
sem ég skildi svo vel

nú þarftu ekki að syngja
þótt þú gerir það vel

þú þarft ekki að syngja
þú þarft ekki að syngja…