Ég veit ekki hvernig þú upplifðir þetta, en það hljómar mjög líkt því sem ég hef lent í og þurfti að vinna úr. Þegar ég byrjaði að halda meðvitund í draumum þá voru draumarnir mínir allir mjög svipaðir og lýsingarnar þínar, dimmir og óstöðugir, það var eins og draumurinn vildi ekki hafa mig innan í sér. Oftast réði ég ekki við neitt í þeim, gólfið fór upp og niður með þeim afleiðingum að ég hrundi niður í það, ósýnilegir kraftar hentu mér fram og til baka með ótrúlegum hraða. Það endaði...