Himinninn mun stikna á fertugustu og fimmtu
breiddargráðu (New York er á 40.-45. breiddargráðu).
Bál stríðsins nálgast nýju borgina.
Á svipstundu ryðst fram og tvístrast gríðarlegur eldur þegar þeir
ætla sér að sannreyna styrk norrænna manna.<p>

Plágan mikla sem fellur á sjávarborgina
mun ekki sjatna fyrr en hefnt hefur verið
fyrir blóð hinna réttlátu. Þau verða dæmd
til gjalda fyrir glæp sem þau
hafa ekki drýgt. Með yfirborðsmennsku verður
hinu mæta lýðveldi gert rangt til.<p>

[Munu Bandaríkjamenn ásaka ranga aðila?]<p>

Þau sem lifa í makindum verða dregin niður.
Í heiminum skapast öngþveiti vegna þriggja
bræðra.
Sjávarborgin verður hersetin. Hungursneyð og drepsóttir
[koma í kjölfar] blóðugra átaka. Illúð
og djöfulskapur magnast um allan helming.
<p>
[Eru þrír bræðurnir twin towers og pentagon? Er þetta kveikjan að stórstyrjöld?]<p>

Þessa spádóma er hægt að finna hér í heild sinni ásamt spádómum um WWIII: http://www.snerpa.is/net/nostri/nostr3.htm