Þar sem að þú býst hvort sem er við svari frá mér þá ætla ég að láta það eftir þér. Ég er alveg sammála þér, það eru ekki bara karlmenn sem móta staðalímyndir um útlit kvenna. Það er tíðarandinn, samfélagið í heild bæði konur og karlar sem búa til þessar staðalímyndir. Ég hef aftur á móti ekki tekið eftir því að femínistar hefi eitthvað sérstaklega talað um karlmenn í þessu samhengi, yfirleitt hefur verið talað um samfélagið í heild, en ég býst svosem ekki við því að þú viljir viðurkenna það...