Vred minn, tímarnir breytast og mennirnir með. Við getum ekki ætlast til þess að unglingar í dag beiti fyrir sig samskonar rómantík og stunduð var er hetjur riðu um héruð. Öld rómantíkersins er kannski liðinn, en rómantíkin sjálf lifir áfram, hefur gert það frá því að móðir mannkyns féll fyrir tilburðum faðir mannkyns og mun gera það löngu eftir að við verðum nýbúar á mars. Alltaf hafa einhverjir sett sig á móti nýmælum í kveðskap, skemmst að minnast deilurnar sem spruttu upp þegar...