Jamm þú virðist hafa lesið úr þessari spurningu það sem ég myndi líklega spurja næst. Sem er svosem ágætt, en segir mér líka að þú veist líka að einmitt ýmsar tilfinningar vakna sem þú reiknar ekki með þegar þú ert komin í svona aðstöðu. Einnig finnst mér allavega skipta máli hversu alvarlegt framhjáhaldið er. Var þetta einn koss og búið, voru þetta margra mánaða lygar, svaf hún hjá honum…osfrv.