Þetta er mín fyrsta grein hérna inn, en ég vildi bara vita hvort að einhver vissi um einhver “ráð” handa mér.
En málið er að ég og ein stelpa erum búin að vera að “dúlla” okkur saman í meira en 2 ár, og byrjuðum svo “opinberlega” saman fyrir tæpum 2 mánuðum og allt blómstraði. Tek það fram að ég og hún erum ung, undir bílprófsaldri svo.. En allavega, allt var í góðu hjá okkur og allt í lagi. Einn daginn kom upp eitthvað vesen en við náðum alveg að leysa það. Nokkrum dögum eftir það vesen þá hittumst við, og það var ekki hægt að sjá að við værum saman, við sátum bara og vissum ekkert hvað væri í gangi eða neitt, fórum meira að segja bæði að gráta af því að við vissum ekki hvað væri að. En svo var allt í lagi að ég held eftir það, og næst þegar ég hitti hana (viku seinna, við gátum bara hist um helgar og þannig, bæði mikið upptekin á virkum dögum, öll kvöld og svo framvegis. Við auðvitað töluðum saman flest alla daga þótt við gætum ekki hist, og já, náðum að tala um og leysa það sem hafði verið í gangi), en já, næst þegar ég hitti hana, þá var allt í góðu, og eins og allt hefði alltaf verið í lagi.
Svo, af því að við vorum að fara í jólafrí, og gátum þess vegna hist líka á virkum dögum, þá hitti ég hana núna eitt kvöldið. Þá segir hún að hún sé ekki tilbúin fyrir samband og þannig, líður illa útaf því og vill að við séum vinir ef það væri hægt og þannig. Ég auðvitað átti ekki von á neinu svona svo ég vissi ekkert hvað ég átti að gera. Reyndri að spurja hana hvað hefði gerst og svona, og hún segir að einhvernveginn hafi tilfinningar hennar til mín minnkað eða eitthvað þannig, og séu núna ekki nógu miklar til að hægt sé að vera í sambandi. Svo hún vill bara að við séum vinir, jújú, ég vil alveg að við séum vinir, en ég mundi samt vilja að við værum meira en vinir, eins og við vorum áður en við byrjuðum almennilega saman, þá vorum við ótrúlega hrifin af hvort öðru og hittumst og kúruðum og kysstumst og allt það. Og var auðvitað þannig líka eftir að við byrjuðum saman.
Þegar hún sagði þetta þá spurði ég hvort hún vildi taka hlé eða eitthvað þannig, en hún vissi það ekkert almennilega, vildi bara að við gætum verið vinir fyrst um sinn allavega. En eins og ég segi, ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera eða neitt, mig langaði að fara en varð samt áfram. Og þá reyndi hún að byrja á þessari vináttu sem ég hafði samþykkt, sem ég skil reyndar ekki, hún hafði verið að rífa úr mér hjartað hálftíma áður. En hún sagði alltaf að ég yrði alltaf hennar besti vinur og var alltaf að segja fyrirgefðu að þetta fór svona og hvað henni þætti ótrúlega vænt um mig og allt þannig.
Svo ég þegar ég fór þá knúsaði hún mig heillengi og ég tók utan um hana auðvitað á móti, en samt alveg í rusli. Ég er mjög lokaður yfirleitt svo ég hafði ekki sýnt almennilega hvernig mér leið þegar hún byrjaði að segja mér þetta í byrjun, en ég hafði algjörlega opnað mig fyrir henni þennan tíma sem við vorum að dúlla okkur og þegar við vorum saman. Hún sendi mér sms síðan þegar ég var farinn og sagði að henni þætti þetta svo leiðinlegt að þetta hafi farið svona og henni þætti svo vænt um mig og þannig.

Og núna veit ég ekki hvað ég á að gera, ég vil reyna að tala við hana betur, hvort að hún vilji að við hættum saman en verðum þá aftur eins og við vorum, þegar við vorum að dúlla okkur saman, og já, ég vil hafa það þannig og ég vona að það sé hægt af því að ég veit ekki hvað ég á að gera efað ég hef hana ekki eins og áður. Ég sagði henni aldrei að ég elskaði hana, ég vissi satt að segja ekki að ég gerði það, vissi ekki muninn á því að vera hrifinn og að elska, svo ég sagði aldrei meira en að ég væri alveg óendanlega mikið hrifinn af henni. Svo þegar hún, ja já, sagði mér upp, þá sagði hún samt að hún eigi alltaf eftir að elska mig og þannig. En eins og ég segi, ég vissi ekki að ég elskaði hana, og það svona mikið, fyrr en ég fann það eftir þetta.

En hvað á ég að gera, ég get ekki sagt að ég sé vinsælasta manneskjann, jú ég á fullt af strákavinum og svona stelpukunningja, en ég er ekki neinn stelpu“segull” ef ég get orðað það þannig. Þetta er ekki vel skrifuð grein, en ég vil samt endilega fá álit ykkar á því hvað ég eigi að gera, hún segir að hún vilji að tilfinningarnar til mín komi aftur, en að það mundi allavega ekki gerast í bráð af því að hún sé þá í pásu frá strákum, þannig séð, í bili.
En hvað ætti ég að gera ? Ég vil þessa stelpu meira en allt, og enga aðra. Ég elska hana.