Veistu, ég mundi bíða í nokkur ár áður en þú tekur svona stóra ákvörðun. Það getur verið að líkami þinn sé ekki búinn að taka út allan sinn þroska. Ég á vinkonu sem fór í sílíkon á þínum aldri því henni fannst hún vera með svo lítil brjóst. Þetta kom voða vel út og hún var afskaplega ánægð. Nema hvað að ári til tveimur árum síðar tóku hennar brjóst upp á því að stækka af sjálfsdáðum, þannig að brjóstin eru HUGE.