Það er strákur sem ég er geðveikt hrifin af. Ég er búin að vera það alveg í 1 1/2 ár. Það hættir ekki. Vinkonur mínar eru alltaf að segja við mig þegar við tölum um þetta ,,oh, þú verður að hringja í hann. En það er bara að þora því. Hvað á maður að segja. Já hæ þetta er Jóna, heyrðu mér finnst þú geðveikt sætur, he he. Þið verðið að viðurkenna að maður gerir það ekki bara 1,2 og bingó. En allavega. Einu sinni fékk ég tækifæri. Við voruð að vinna saman og ég var að bera eitthvað geðveikt þungt(man ekki hvað það var) og hann bauðst til þess að hjálpa mér. Fattiði, dagana eftir hugsaði ég ekki um annað. Hann talaði við mig GOOD, en nú er mér slétt sama ég er komin yfir hann eða það segi ég alltaf), en samt ekki, því ég hugsa alltaf um hann. GOOD HELP ME.