Ég er mjög sammála þessu. Það er eins og áflogahundar fatti ekki hvers vegna fólk æfir þessar íþróttir. Ekki heyrir maður hlaupara hneykslast á sundmönnum fyrir að ferðast hægar. Annars kíkti ég á eitthvert vídeó á þessari heimasíðu. Mér fannst þetta mjög flott og áhrifamikið, nema fangbrögðin (eða fangbragðið). Ég hef séð 6 ára krakka sviðsetja eðlilegri köst.