Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

cornholio
cornholio Notandi frá fornöld 126 stig

Hermann á HM í beinni kl 07:10 í fyrramálið (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Klukkan 07:10 (+/- 5 mín) í fyrramálið (fim 25.8.) að íslenskum tíma ætti Hermann Unnarsson að keppa í 128-manna úrslitum á HM í júdó í beinni útsendingu hér: http://212.227.28.227/live/index.php Þið þurfið að velja dýnu nr 1.

Myndir af HM í júdó (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Áhugasamir geta fundið aragrúa af myndum frá Haustmótinu í júdó á http://www.ippon.is

Netviðskipti á erlendum mörkuðum (2 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég hef verið að velta fyrir mér að bregða á leik með smáaura og versla með erlend hlutabréf og/eða fjármálaafurðir á netinu. Maður getur náttúrulega stofnað e*trade reikning gegnum Landsbankann. Það er ábyggilega traust en mér finnst þóknunin frekar blóðug ef maður er að leika sér með litlar upphæðir. Hefur einhver hérna reynslu af ódýrari aðilum (s.s. http://www.scottrade.com/)? Getur maður ekki auðveldlega lent í svikahröppum? Veit einhver hvers vegna það kostar 20$ að versla á e*trade...

Úrslit Opna finnska í júdó (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Íslendingar kepptu á Opna finnska B-mótinu um síðustu helgi. Við unnum 1 glímu af 8, sem er ekki til að hrópa húrra fyrir. Í fyrra fékk Bjarni Skúlason t.d. gull en tapaði nú í fyrstu umferð. Það gengur vonandi betur nú um helgina á Opna sænska. En það sem ég vildi benda á er að hér er hægt að skoða allt um gang mótsins: http://koti.mbnet.fi/%7Emehtonen/jfo2003/index.html<br><br> <b>Cornholio</

NM í júdó (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Norðurlandamótið í júdó fór fram í gær. Tveir Íslendingar héldu titlum sínum; Anna Soffía Víkingsdóttur og Bjarna Skúlason. Gísli Jón og Vernharð voru fjarri góðu gamni. Annars má finna nánari úrslit hér: http://www.judo.se/simpnews/singlenews.php?lang=e n&layout=2&category=76&newsnr=1378&srcscript=/simpnews/ news.php

Opna finnska í júdó (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eins og margir vita, þá fékk Bjarni Skúlason úr Ármanni gull á Opna finnska (EJU B-mót) um daginn í 90 kg flokki. Aðrir keppendur voru (vona að ég gleymi engum): Höskuldur Einarsson, JR, -60 kg Snævar Jónsson, JR, -73 kg Axel Ingi Jónsson, JR, -81 kg Máni Andersen, JR, -90 kg Gunnar Sigurðsson, JR, -100 kg Hjördís Ólafsdóttir, JR, -63 kg Anna Soffía Víkingsdóttir, JR, -70 kg (5-6. sæti) Gígja Guðbrandsdóttir, JR, -70 kg (5-6. sæti) Ég nenni ekki að rekja gang mála, en þeir sem vilja skoða...

Sparkbox í Pumping Iron. (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða heimasíðu Pumping Iron og sá að þar er ýmislegt kennt. Getur einhver útskýrt fyrir mér muninn á “Kick boxing”, “Thai Kick” og “Muay Thai”? Hvaða útbúnað (fatnað, hjálma, tannhlíf, vafninga, hanska, skó, sjúkrakassa) þarf maður að hafa í hverri af þessum íþróttum? Eru viðvaningar velkomnir á þessar æfingar? Hversu mikil áhersla er á áflog á æfingum í hverri af þessum íþróttum? Með von um skjót svör, Cornholio.

Yoshida snýr aftur. (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það var ekki gert ráð fyrir því að hinn dagfarsprúði japanski júdómaður, Hidehiko Yoshida, myndi slást mikið eftir að hann handleggsbrotnaði illa á Ólympíuleikunum í Sidney. Hann hafði átt langan og farsælan feril og varð m.a. heimsmeistari í -90 kg. flokki í Birmingham 1999. Ég sá hann í hlutverki þjálfara á æfingu í Tokyo síðasta haust og mér brá þegar ég sá hvað hann var orðinn pattaralegur og meinleysislegur. Hins vegar rak ég upp enn stærri augu áðan þegar ég sá viðtal við hann á...

Ráðleggingar óskast (6 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sælt veri fólkið. Ég þarf að skipta um bardagaíþrótt, til skamms tíma a.m.k. Ég æfði júdó í mörg ár þrátt fyrir að vera bakveikur en nú get ég ekki stundað fangbrögð lengur nema ég vilji hætta á að verða endanlega krypplingur. Ég hef prófað karate og þar komst ég að því að ég vil berjast í töluverðri snertingu. Það sem mér finnst koma til greina er box (mig grunar reyndar að það sé frekar frumstæð íþrótt), taekvondo eða venjulegt kickbox (veit lítið um þá íþrótt). Hvað mynduð þið gera í...

Þá er komið að því (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ágætu samherjar. Nú hefur margt verið sagt en enginn þurft að setja peningana sína þar sem munnurinn á honum er. Ég legg því til að við reynum með okkur í bardagamóti aldarinnar. Ég auglýsi hér með eftir manni til að skipuleggja herlegheitin. Óska andstæðingum mínum alls hins besta, Cornholio.

Í hreinskilni: Hver er bestur? (8 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ef haldið yrði ruddalegt bardagamót, svipað og The Ultimate Fighting Championship, hver ykkar bardagameistaranna myndi vinna og hvers vegna? I am Cornholio!
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok