“Staðnir að stórfelldu kókaínsmygli



Tveir karlmenn voru staðnir að stórfelldu kókaínsmygli er þeir reyndu að smygla tæpum 400 grömmum af kókaíni til landsins í gegnum Leifsstöð á þriðjudag. Þeir voru meðal farþega frá Amsterdam og höfðu falið efnin í 12 smokkum í endaþarmi. Hvor þeirra var með tæp 200 grömm af kókaíni. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur ekki oft áður lagt hald á jafnmikið af kókaíni í einu lagi hjá smyglurum sem reyna þessa aðferð.
Mennirnir voru enn fremur með tollskyldan hnefaleikabúnað að verðmæti á milli 300-400 þúsund krónur, sem einungis hafði verið greitt af að hluta. Tollgæslan lagði því hald á varninginn.


Tengjast hnefaleikafélögum
Hinir grunuðu tengjast sínu hnefaleikafélaginu hvor og er annar þeirra þjálfari í fullu starfi. Við komuna voru þeir klæddir áberandi íþróttafötum, merktir Íslandi með íslenskum fánum. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, hlýtur að teljast áhyggjuefni að íþróttamenn svo kirfilega merktir sem slíkir skuli verða uppvísir að svo stórfelldu smygli á hörðum fíkniefnum. Að iðka slíka glæpastarfsemi undir þessu yfirvarpi hljóti bæði að gera íþróttamenn á ferðalögum tortryggilega og ekki síður grafa undan trausti foreldra á hnefaleikafélögum sem börn þeirra æfa hjá. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hjá hnefaleikafélögum æfa allt niður í 10-11 ára börn hnefaleika hjá þeim.
Mennirnir hafa báðir viðurkennt vörslu kókaínsins og telst málið upplýst að mestu. Ekki var þörf á að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim en mál þeirra verður tekið fyrir hjá ákæruvaldinu að lokinni lögreglurannsókn hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli.

Við rannsókn málsins hefur lögreglan haft tal af forsvarsmönnum viðkomandi hnefaleikafélaga við að reyna að upplýsa meint tollalagabrot mannanna”. Tekið af www.mbl.is


Jæja hvernig getur maður orðað þetta? Núna er manni nóg boðið að tveir menn sem er að þjálfa box og allt frá litlum strákum upp í metnaða fulla stráka sem langar að verða góðir íþróttamenn séu að smyggla inn fíkniefnum. Þetta er ÍÞRÓTT ekki glæpastarfsemi. Ég crazy yfir þessu og ef þeir sem gerðu þetta(sem mig grunar hverjir eru) að drulla sér frá okkur hinum sem eru að reyna að koma þessari íþrótt á framfarir. Og vera í Landsliðs treyjum(það er ekki eins og þeir tengist einhverju landsliði) til að auðvelda sér leiðina í gegnum tollskoðuninna og þar að meðal með boxhanska til sem á að selja HVAÐ er eiginlega að ykkur. Ef þetta fer að bitna á okkur hinum þá hika ég ekki við að láta vita hverjir þið eruð!!!!