Ég hef æft júdó og það er mjög líkamlega krefjandi, sérstaklega hvað varðar úthald, en einnig styrk, sársaukaþol og liðleika. Andlega hliðin (á Vesturlöndum a.m.k.) krefst þess bara að fólk sé óvitlaust og með meðalhugrekki. Munurinn á íþróttunum er töluverður (ég hef reyndar ekki æft Ju Jitsu) eins og bent hefur verið á. Ég hef engu við það að bæta. Kveðja, Flækjufótur.