Frétt fengin af Taekwondo.is.
_____________________________

Ísland tekur þátt í taekwondo á Smáþjóðaleikunum

Búið er að forskrá Ísland á Smáþjóðaleikana 2005 í Andorra í sumar. Er þetta í fyrsta sinn sem keppt er í taekwondo á Smáþjóðaleikum og fáum við að senda 1 keppenda úr hverjum þyngdarflokki.
Með því að forskrá er ákveðið að Ísland taki þátt í Smáþjóðaleikunum en ekki er ákveðið strax hverjir keppa fyrir hönd Íslands. Þetta eru elleftu Smáþjóðaleikarnir sem haldnir verða og verða haldnir í Andorra nú í sumar 3. til 4. júní.

Texti: Rósa Margrét Grétarsdóttir
_____________________________

Frétt fengin af Taekwondo.is.