Gerum okkur það að ég sé brjálaður vísindamaður, ég er að drepast úr þunglyndi og hata mannkinið fyrir allt sem það hefur gert mér, ég var nörd í skóla og var strítt vegna þykku gleraugna minna faðir minn lamdi mig vegna drikkju sinnar, því leitaði í bækur til huggunar, svona rétt eins og sumir leita í mat til huggunar. Bækurna gerðu ekki grín af mér né börðu mig til óbóta. Ég átti enga vini og vildi ekki eignast vini eftir margar tilraunir til þess. Mönnum þótti ég bara einfaldlega vera leiðinnlegur og eftir að árin liðu þótti mér mannkinið vera grimmt og leiðinlegt.
Eftir að ég hafði dúxað í efnafræði í einum virtasta háskólanum fékk ég vinnu hjá ríkinnu. Mér var borgað vel og vann ég fyrir herinn meðal annars en ég fékk aldrei viðurkenningar fyrir vinnu mína, og þar með fannst mér enn einu sinni mannkinið vera á móti mér, hatur mitt jókst með hverjum deginum. Ég fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti útrýmt mannkyninu án þess að nokkur gæti stöðvað mig. Svo fékk ég þessa snildar hugmynd, ég snéri mér að skordírum og flugum. Hvað ef hægt væri að nota svona lítil dýr til að drepa mann og að samvinna milli manns og dýra myndi breiða út veirunni.
Ég ákvað að nota moskítóflugur til aðgerða minna og fór að rækta þær og aðeins kvennkynsflugur því það eru þær sem bíta og nærast á blóði manna og díra, eftr að ég var kominn með nóg af flugum sýkti ég þær með veirunni og slepti þeim svo lausum, vírusinn kallaði ég malaríu.
Auðvitað komst ríkisstjórnin að þessu seinna meir, og stöðvaði mig eftir að ég slepti fyrsta settinu af flugunum lausum, en það var ekkert sem þeir gátu gert, því ekki vildu þeir að það fréttist að maður sem vinnur fyrir þá hefði fundið aðferð til að drepa mannkinið eins og það leggur sig, ég hefði einfaldlega getað sykt og ræktað fleir flugur, því það er nú ekki séns að drepa allar moskítíflugur sem til eru.
Ég gerði að sjálfsögðu ráðstafanir, ríkið getur ekki tekið mig af lífi því hún vill ekki að þetta fréttist, ég hannaði nefnilega annan vírus að þessu sinni tölvivírus og hann virkar þannig að, ef ég slæ ekki kóda minn inn á sólahringsfresti mun vírusinn breiða sér. Hann nokkuð harmlaus fyrir hinn venjulega borgara en ekki fyrir ríkisstrjórnina, hann sendir allar upplýsingar og sannanir fyrir því að ég hafi búið til malaríuna og sannanir fyrir því að ég hafi unnið fyrir ríkið og herin, þessar sannanir mynu fara inn á tölvur í gegnum póstlista og erfið leið fyrir óvini mína að koma í veg fyrir að þetta fréttist ekki ef ég yrði drepinn.
Nú bý ég fínu lífi í tælandi, með nýju kellinguna mína.

Þetta er bara svona samsæris kenning sem ég veit að er ekki sönn en gæti samt verið óhugnarlega nálægt einhverjum sannleika.