Þá er þetta búið. Það ótrúlega gerðist í -90 að heimsmeistarinn tapaði fyrir lítið þekktum Marokkomanni, Adil Laknifli. Þannig að í 2. umferð fékk Bjarni þennan Marokkomann og vann hann á hantei. Í 16 manna úrslitum mætti hann David Alarza (ESP), sem var t.a.m. hér áður fyrr heims- og Evrópumeistari -21 árs. Bjarni tapaði fyrir honum á yuko. Spánverjinn fór alla leið í úrslit, þannig að Bjarni fékk uppreisnarglímu og hún var á móti Zurab (GEO), sem hefur t.d. silfur frá síðasta HM á...