Mín fyrstu jól að heiman var 1995 og þá var ég tvítug. Flutt úr sveitinni í borgina og var að vinna þannig að ég komst bara alls ekki heim. Við ákváðum tvær vinkonur að vera bara saman af því að hvorug okkar komst heim. Í stuttu máli sagt voru þetta frábær jól, við skemmtum okkur ofsalega vel. Að vísu var jólasteikin ekki nákvæmlega eins, kartöflunar voru franskar af því að hvorug kunni að brúna kartöflur, jólasalatið var á sínum stað, rauðvínið líka og allt saman. Svo til að fjölga pökkunum...