Langar að athuga hvort fleiri adminum finnst að það ætti að breyta adminkubbnum þannig að adminar geti séð hvaða kannanir eru í bið hverju sinni. Eins og er er bara hægt að sjá hvaða kannanir bíða ef maður er að samþykkja nýjar kannanir. Þetta er sérstaklega slæmt ef maður vill sjálfur senda inn könnun en getur ekki sett hana á bið. Hún kemur inn strax og maður veit ekkert hvar maður er að troða henni inn, hvort önnur sé kannski í bið daginn eftir eða eitthvað slíkt.

Annað er að það væri mjög gott ef maður gæti séð á myndunum hvenær þær voru samþykktar svo að maður samþykki ekki einhverja sem er í bið þannig að sú fyrri fái ekkert að njóta sín á aðalsíðunni.

Reyndar þætti mér afskaplega gott ef ég gæti sent inn kannanir og myndir þannig að þær færu á bið eins og hjá öðrum.

Það er örugglega eitthvað fleira sem mér dettur í hug seinna, en þetta er svona það sem fer alltaf reglulega í taugarnar á mér ;)
<br><br>Kveðja,
GlingGlo
Kveðja,