Techno - Trance - Progressive - Ambient Já það verður sannkölluð hardcore stemmning á Club Ibiza næstu helgi, en samkvæmt Óstaðfestum fregnum verða þeir DJ Bjössi Brunahani, DJ Exos, DJ Ívar Amore og sjálfur DJ Ghozt að þeyta skífum. Ekki veit ég hvort um er að ræða föstudags eða laugardagskvöld en ég býst nú við að sá sem veit meira um þetta mál muni pósta dagsetningu,tíma og kostnaði hér fyrir neðan. Og endilega senda mér skilaboð svo hægt sé að droppa þetta í “Tilkynningar” dálkinn. Talað er um að hafa einhverja ambient stemmningu á undan djamminu en það verður bara koma í ljós…

Semsagt; nú fáum við að vega og meta þessa umræðu um club ibiza hérna á raftónlist með eigin augum!

PS: ég lofa því að eftirtaldir verða ekki spilaðir á ibiza:
Scooter;
Darude;
allir hinir sauðarnir í kommersjal trance menningu ..

Vonast til að sjá sem flesta =)