Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Húsið brann! Landssöfnun? (35 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Þar sem engin söfnun er í gangi núna finnst mér óhætt að senda inn þessa örstuttu hugleiðingu mína. Það hefur lengi loðað við okkur Íslendinga að telja að ekkert komi fyrir okkur og ef svo ólíklega vill til að komi fyrir, þá reddist allt einhverveginn af sjálfu sér. Einhver guðdómleg hönd svífi niður úr himnum til þess að bjarga okkur út úr því sem fyrir getur komið. Þetta er áreiðanlega stór þáttur í því að fólki finnst ekki taka því að tryggja sig. Hversu oft sjáum við ekki greinar í...

Reykjavík - Borg bleytunnar (Enska) (15 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 8 mánuðum
A curious fellow died one day and found himself waiting in the long line of judgment. As he stood there he noticed that some souls were allowed to march right through the gates of Heaven. Others, though, were led over to Satan who threw them into the burning pit. But every so often, instead of hurling a poor soul into the fire, Satan would toss a soul off to one side into a small pile. After watching Satan do this several times, the fellow's curiosity got the best of him. So he strolled over...

Ástarsaga (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Komdu með mér og finndu hvaða draumar lifna í nótt. Við getum svo ef við viljum sannað hvað ástin er sterk. Lífið er skrýtið þú segir og brosir með ljós í augum og ég veit það er satt sem þú segir ég er ekki hræddur ef hjá þér ég er. Já, ég veit að þú átt mitt hjarta ég veit að þitt hjarta er mitt ég veit að saman við lifum uns á lífinu þreyttur ég verð. Og þá kveð ég sáttur og glaður því lífinu ég eyddi með þér enginn það tekur frá mér sama hve gamall ég verð.

Vandi heimspekinnar (12 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Allar fræðigreinar glíma við vanda. Sumar þeirra glíma við erfiðleika í rannsóknarsiðgæði -saman ber erfðafræðina og aðrar við fjársvelti -saman ber nær öll félagsvísindi. Stærsti vandi heimspekinnar er líklega sá að almenningur lítur niður á hana og á fátt háskólanám er meira litið niður en heimspekina. En hvernig má breyta almenningsálitinu? Hér að neðan eru mínar hugrenningar um þetta. Heimspekin er vissulega áhugaverð fræðigrein. Sagan, kenningarnar og hugmyndasmiðirnir. Allt er þetta...

Stórbætt umgengni hundaeigenda (2 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki hundaeigandi sjálfur en hef alltaf haft mjög gaman af þessum ferfættu vinum okkar. Það sem ég hef ekki haft jafngaman af er allur hundaskíturinn sem hefur svo að segja dúkalagt götur bæjarins. En nú er það af sem áður var. Fyrir svona tveimur árum síðan þurfti maður alltaf að horfa niður á gangstétt en ekki beint fram fyrir sig þegar maður fékk sér göngutúr í Reykjavík. Ef maður álpaðist til að horfa ekki á gangstéttina var það bókað mál að maður steig í að minnsta kosti þrjá...

Ef ástin hverfur (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef ég finn það í hjartanu rauða að ástin er horfin í burtu þá vil ég að hjarta mitt hætti að slá fleiri slög. Ef ég finn að ástin er horfin og kuldinn hjarta mitt gleypir þá vil ég að kuldinn gleypi landið um leið. Ég vil ekki vera án þín. Ég vil bara þig. Þig þegar ég vakna og sofna þig alla tíð. Þú ert mér allt og ef ástin mér hverfur er þá nokkuð eftir af mér? Þá vil ég ekkert vita.

Snjólaug bragadóttir (4 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það var eitt sumar þegar ég var um 12 ára að ég fór í sumarbústað með foreldrum mínum. Það er náttúrulega engin frétt en það sem mér þótti hvað merkilegast í þessum sumarbústað var að þar var fjöldinn allur af bókum eftir konu nokkra sem ber nafnið Snjólaug Bragadóttir og bætti við eftir nafnið: Frá Skáldalæk. Bækurnar báru heldur klisjukennd nöfn á borð við Ráðskona óskast í sveit, má hafa með sér barn. Nöfn sem ekki vekja neinn sérstakan lestarþorsta. En nafn höfundarins: Snjólaug...

Cabaret (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kvikmyndin Cabaret er bandarísk frá árinu 1972. Aðalhlutverk leika Liza Minelli, Michael York, Helmut Griem, Joel Grey og Fritz Wepper. Fjölmargir aðrir leika í þessari margverðlaunuðu mynd og flestir sýna stórkostlegan leik. Minelli og Joel Gray hlutu Óskarsverðlaun en annars hlaut myndin 8 Óskarsverðlaun, 8 BAFTA verðlaun og 3 Golden Globe verðlaun. Samtals hefur myndin hlotið 28 verðlaun. Myndin gerist tveimur árum fyrir valdatöku nazista í Þýskalandi. Hún fjallar um þá undirmenningu sem...

Gleymt snilldarverk (5 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það eru margar bækur sem koma út og njóta gríðarlegra vinsælda á sínum tíma. En einhverra hluta virðast þær gleymast og rykfalla á bókasöfnum. Þetta eru einmitt örlög einnar af mínum uppáhaldsbókum. Bókin sem er eftir Auði Haralds heitir Læknamafían og er eitt mesta snilldarverk íslenskrar bókmenntasögu. Stór fullyrðing en í þessari stuttu grein ætla ég að reyna að færa rök fyrir máli mínu. Bókin er vissulega barn síns tíma, lýsingar á spítölum og heilsugæslu eru kannski ekki eins og...

Útvarpsráði tókst það! (6 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það heitir víst að bera í bakkafullan lækinn að skrifa grein um árangur okkar í Eurovision en það verður seint um mig sagt að ég kunni mér hóf svo ég skrifa þessa stuttu grein og vona að mér fyrirgefist. Íslenska þjóðin virðist hafa fengið taugaáfall undir stigagjöfinni og einhvern veginn virtist engann hafa grunað þessi yrði raunin. En ef vel er skoðað verður strax ljóst að þetta var tilgangurinn og markmiðið með þessu framlagi okkar. Skoðum málið. Forkeppni var haldin hér á landi....

Hver veit? (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Hver veit? Að finna í hjartanu sorg án sorgarefnis og ást án elskhuga. Að finna til gleði án neins til að gleðjast yfir. Hver veit? Hver veit hvað býr í hjarta þess sem þú ekki þekkir? Hver veit? Hver veit hvað býr í hjarta þínu?

Ferðalag (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Hann situr og horfir út. Hún situr og les. Þessi hlustar á útvarpið. Hinn talar í símann. Þrettán manneskjur hver í sínum heimi uns bjallan glymur og þessi með bókina fer út úr vagninum.

Minning (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Hversvegna örlög þín eru svo sár veit ekki nokkur, alls ekki ég en ég veit þú lifir, hvað svo sem gerist andi þinn sterkur sem styrkasta stál. Tárin þau streyma en öll til einskis þú kemur ei aftur hve mörg kunna að falla. Þau veita þó huggun, sorgin svo grimm en lífið þó bjart því von mér þú veittir. Því hvað svo sem gerist ertu hér hjá mér hvert svo sem fer ég ertu hér æ ég geymi þig alltaf, hjarta þitt lifir minning þín skær eins og skírasta gull. Sál þín á vængjum burtu er flogin og...

Draumur og dirfska (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Með draum og dirfsku í hjarta dáð þú vinnur bjarta. +með lán og líf í brjósti lauf þú sýnist í hrjóstri. Með von og visku í sinni vandann þú leystir í tilveru minni. Lykill að lánlausum manni ljóðið í braglausum ranni. Fegurð mí formlausum heimi fumlaus í höktandi geimi. Miskunin í mannlausum garði mannsins sem ástina barði. Drottni ég þakka dásemd þína þakklæti fyllir nú söngvana mína. Takk fyrir töfrana glæsta sem töfruðu upp hjarta mitt læsta. Þitt hjarta fær hjarta mitt aldrei að missa...

Við hengdum hann forðum (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Við hengdum hann forðum og hengjum víst daglega enn. Á krossinn við kíktum við horfðum og kaldur hann horfði á menn. Við héldum við hefðum af syndinni lært hörfðum við lutum í skömm, á holdið við horfðum ískalt og sært hans taug til mann var enn svo römm. Í dag er vor henging á allt annan hátt heimurinn hengir ei Krist. Við látum oss nægja vorn ljómandi mátt í veröld sem þó er svo trist. Þeir stóru á smáum lumbra og lemja kaldlyndir reyna þeir síðan að semja og sverja upp á fingurna fimm. En...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok