Hann situr og
horfir út.

Hún situr og
les.

Þessi hlustar
á útvarpið.

Hinn talar í
símann.

Þrettán manneskjur
hver í sínum
heimi
uns
bjallan glymur
og þessi með
bókina
fer út úr
vagninum.