Ef ég finn það
í hjartanu rauða
að ástin er
horfin í burtu
þá vil ég að
hjarta mitt hætti
að slá fleiri slög.

Ef ég finn að ástin
er horfin
og kuldinn
hjarta mitt gleypir
þá vil ég að
kuldinn gleypi
landið um leið.

Ég vil ekki vera
án þín.
Ég vil bara þig.
Þig þegar
ég vakna og sofna
þig alla tíð.

Þú ert mér allt
og ef ástin mér hverfur
er þá nokkuð eftir af mér?

Þá vil ég ekkert vita.