Hver veit?

Að finna í hjartanu
sorg án sorgarefnis
og
ást án elskhuga.

Að finna til gleði
án neins
til að gleðjast
yfir.

Hver veit?
Hver veit hvað
býr í
hjarta þess
sem þú ekki
þekkir?

Hver veit?
Hver veit hvað
býr í
hjarta
þínu?