Komdu með mér og finndu
hvaða draumar lifna í nótt.
Við getum svo ef við viljum
sannað hvað ástin er sterk.

Lífið er skrýtið þú segir
og brosir með ljós í augum
og ég veit það er satt sem þú segir
ég er ekki hræddur ef hjá þér ég er.

Já, ég veit að þú átt mitt hjarta
ég veit að þitt hjarta er mitt
ég veit að saman við lifum
uns á lífinu þreyttur ég verð.

Og þá kveð ég sáttur og glaður
því lífinu ég eyddi með þér
enginn það tekur frá mér
sama hve gamall ég verð.