Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bls
bls Notandi frá fornöld 710 stig

Black Sabbath (10 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Meðlimir: ——– John “Ozzie” Osbourne (söngur) — fæddur 3.des 1948 — ——– Anthony Iommi (gítar) ———— fæddur 19.feb 1948 – ——– William Ward (trommur) ———– fæddur 5.maí 1948 — ——– Terry Geezer (bassi) ————- fæddur 17.júlí 1949 - **************** Allir frá Birmingham í Englandi ****************** Allir meðlimir sveitarinnar höfðu áður spilað með nokkrum “local” hljómsveitum áður en þeir komu saman árið 1969 og stofnuðu Black Sabbath, reyndar hétu þeir fyrst Earth en breyttu nafninu eftir túr um...

Lou Reed ... það sem ég þykist vita um hann :) (3 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Rétt nafn: Louis “Butch” Firbank Fæddur: 2.mars 1944 Heimbær: Freeport í New York Lou Reed byrjaði ferlinn sinn ungur að aldri, eins og svo margir góðir tónlistarmenn. Hann fór hljómsveitum eins og Pasha and the prophets, The jades og the Eldorados (ekki samt fiftís R&B hljómsveitin). Árið 1965 var hann einn af stofnendum hljómsveitarinnar Velvet underground sem flestir ættu nú að kannast við. -A highly acclaimd drug-oriented band organixed by cult figure Andu Warhol- Þegar leið undir lok...

Ringo Starr (4 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Rétt nafn: Richard Starkey Fæddur: 7.júlí 1940 Heimabær: Liverpool í Englandi Af öllum Bítlunum hefur Ringo Starr kannski látið minnst á sér bera sólóferilslega séð það er að segja. Hann hefur nú samt gert alveg fullt, til dæmi hefur hann átt 12 frábærlega vinsæl lög og þar á meðal “Photograph” og “You´re sixteen” sem náðu bæði fyrsta sætinu. Plöturnar hans hafa líka flestar náð feiki vinsældum eins og Sentimental journey, Beaucoups of blues, Ringo og Goodnight Vienna. Ringo reyndi líka að...

Silverchair :D (18 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ástralska hljómsveitin Silverchair hefur selt yfir 6 milljónir eintaka geisladiska og þeir hafa verið með fleiri topp 20 hittara en nokkur annar í heiminum. Þessi árangur hefur sett þá fremsta í flokk yfir rokkbönd í Ástralíu, en þeir hafa verið valdir besta hljómsveit Ástralíu nærri hvert ár síðan þeir byrjuðu að spila fyrir alvöru. Bandið var stofnað af skólafélugunum Daniel Johns (söngur, gítar og píanó) og Ben Gilles (trommur) í úthverfi Mereweather í Newcastle, Ástralíu. Seinna gekk svo...

Doors :) (16 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
The Doors Meðlimir: James Douglas Morrison söngvari, fæddur 8 desember 1943 í Melbourne, Flórída. Dó 3. júlí 1971 í París, Frakklandi. Robert Krieger gítarleikari, fæddur 8.janúar 1946 í Los Angeles, Kaliforníu. Raymond Manzarek bassaleikari/hljómborðsleikari, fæddur 12. febrúar 1943 í Chicago, Illinois. John Densmore trommuleikar/hljómborsleikari, fæddur 1. desember 1943 í Los Angeles, Kaliforníu. The Doors byrjuðu í U.C.L.A í Bandaríkjunum á miðjum sjöunda áratugnum þar sem Jim Morrison...

Janis Joplin (12 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Janis Joplin fæddist 19. janúar árið 1943 í Port Arthur, Texas. Hún byrjaði snemma á unglingsárunum að koma fram og syngja, aðal áhrifavaldar hennar voru blúsararnir Bessie Smith og Huddie (Leadbelly)Ledbetter. Á miðjum sjöunda áratugnum ferðaðist hún mikið um og söng á fjölmörgum klúbbum og börum, stundum fyrir lítinn sem engann pening. Að lokum settist hún að í San Francisco þar sem hún hitti kunningja sinn að nafni Chet Helm og urðu þau góðir vinir og hann kynnti hana fyrir Big brother...

Jazz 1945 - 1955 :P (8 álit)

í Jazz og blús fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það má segja að íslenski tónlistargeirinn hafi byrjað frekar hægt, það var t.d. ekki fyrr en árið 1930 sem Tónlistarskólinn í Reykjavík var stofnaður og fjórum árum seinna sem fyrstu nemendurnir útskrifuðust þaðan. Hlutirnir tóku þó stakkaskiptum eftir að Bretar yfirgáfu Ísland eftir að hafa hernumið það árið 1940. Þeir skildu eftir þó nokkuð af hljómplötum, það var þá sem Íslendingar uppgötvuðu jazzinn. Þessi tónlistarstefna setti strax svip sinn á íslenskt samkvæmislíf. Átján ára gamall...

The Ink Spots :) (4 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Meðlimir - Harold Winley - Bassasöngvari Tenging hans við the Ink Spots nær aftur til 40 ára og hann hefur spilað með þeim síðatsliðinn 20 ár. Hann er sá gáfaði í hópnum og hefur áhuga á öllu og engu, en ljósmyndir og tónlist er ástríða hans. Hann fæddist í Washington DC þar sem flestir í fjölskyldu hans býr ennþá. Sonny Hatchett - annar aðalsöngvari/annar tenór Sonny er grínistinn í hópnum, bæði á sviði og í venjulegu lífi, hann hefur komið fram sem uppistandari víðsvegar um Bandaríkin og í...

Chuck Berry (13 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tónlist Chuck Berry hefur staðið tímans tönn í kynslóðabil. Lög eins og Johnny B. Goode, Maybellene og Memphis eru með þekktustu rokk og ról lögum aldarinnar. Listamaðurinn bak við þessi lög, Chuck Berry er brautryðjandi í tónlist en hann átti þátt í að gera rokk og ról að viðurkenndri tónlistarstefnu í stað þess að vera litið á sem afbrigði af R&B oh country tónlist. Ótrúlega velgengni Berry má rekja til hæfni hans í að túlka áhyggjur og hugarfar hlustendahóps síns í tónlist sinni. Á...

úr viðskiptablaðinu :) (5 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 9 mánuðum
….í búðinni ég var rétt um það bil að ljúga við að undirrita kreditkortanótuna í ónefndri verlsun þegar afgreiðslustúlkan veitti því athygli að ég hafði aldrei skrifað nafnið mitt aftan á korgið sjálft. Hú tilkynnti mér að hún hefði ekki leyfi til að heimila viðskipti nema kortið væri undirritað og þegar ég innti hana eftir ástæðunni úskýrði hún fyrir mér að það væri nauðsynlegt til að bera saman undiskriftina á nótunni við undirskrifina á kortinu til að athuga hvort ekki væri um sömu...

Hjálpið elsku bestu vinkonu minni??? :) (28 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Svona standa málin, vinkona mín bað mig um ráð í gær sambandi við strák sem hún er eitthvað að slá sér upp með - mig langaði að fá að vita hvert ykkar ráð eru við aðstöðunni sem hún er í. :) Hún er fædd 1984 og hann 1983 og fyrir rúmum 3 vikum byrjaði hún að hitta þennan strák - hún lýsir honum sem voða fínum gaur en gallinn við hann er bara sá að hann er: a) alltof upptekinn, hann er að vinna til klukkan 17:00 og svo fer hann á box æfingu frá 18:00 - 21:00 og er því svo óhuggnalega þreyttur...

Undanúrslit MORFÍS. MH - Kvennó (7 álit)

í Skóli fyrir 22 árum, 1 mánuði
Undanúrslit í MORFÍS - Ræðukeppni Framhaldskólanna. Fimmtudaginn 21.mars í Menntaskólnum við Hamrahlíð. Við mættust lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Kvennaskólans í Reykjavík. Umræðuefni: Rómantík (eða rómartík). MH voru með - Kvennó á móti. Liðstjóri MH byrjaði á því að kynna liðið sitt til leiks, og gerði það á dramatískan og skemmtilegan hátt. Þvínæst kom liðstjóri Kvennó, sleppti öllum látum og kynnti sitt lið mjög “stílhreint”. Æji…mú ég nenni ekki að segja frá öllum ræðunum, hverja...

Faculty - mö? (28 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 1 mánuði
Já halló, ég veit ekki mikið um hip-hop, held bara upp á eina hip-hop hljómsveit og það er the roots. En allavegana (og núna er ég bara að tala útfrá mér) er hljómsveitin Faculty ekki bara óvinsælasta hljómsveit á Íslandi? Eða jafnvel í heiminum? Ef við tökum nú t.d. eitt dæmi til að rökstyðja þessa spurningu mína, hérna á áhugamálinu hip-hop á huga.is, stendur yfir könnun þar sem er verið að tala um bestu plöturnar eða eitthvað (man það ekki alveg) Og þar hefur hljómsveitin Faculty ekki...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok