Ég veit nú kannski ekki nógu mikið til að svara þér af einhverju viti… Annars mæli ég bara með að þú æfir með einhverjum með sama hugarfar og þú ert með, einhverjum sem ætlar mjög hátt.
Það er ekki hægt að svara þessu… Það er mjög mismunandi hversu stór og sterkur þú getur orðið, en þar sem þú ert fyrir stór strákur og vöðvamikill eins og þú segir, þá eru ágætis líkur á því að þú gætir orðið tröll án þess að hafa eins mikið fyrir því og aðrir. En til að vera mjög sterkt tröll (WSM sterkur) þá já… gefa sterar forskot… Annars verður þú sjálfur bara að komast að því hversu langt þú kemst og hversu sterkur þú getur orðið án þess að nota stera. En menn eru mörg ár að bæta sig og...
Þegar þú getur good mornings, beygjiru fæturnar þá e-ð? Og hvort ertu með stöngina ofarlega á bakinu eða neðarlega? Ég er með stöngina frekar neðarlega í beygjunni og hef stöngina eins í gm.
Lítið búinn að æfa og detta fáránlega niður síðast í byrjun desember útaf prófunum og svona, annars var planið bara að koma sterkur inn á Íslandsmótinu í mars
Shit marr, hvað var ein svona æfing löng hjá þér? Ég ætla byrja á þessu í næstu viku og tók smá prufu áðan með þyngdir og svona… Ég sleppti stiff legginu var búinn að vera svo lengi með hitt, var samt að deyja í speed deddinu
Jahh, var svolítið lengi að fikta bara og krulla. Annars veit ég ekki hvað ég er búinn að vera lengi. Fyrsta mótið mitt var minnir mig Íslandsmót kraft 2009
Ertu að æfa í Massa, hvað heitiru? En ég ætla að keppa fyrir Massa og verð líklegast í -67,5kg… Er svona á mörkunum held ég… Veit ekki hvað ég stefni á, en opnunartölur verða e-ð á þessu róli: 180-185kg/110kg/185-190kg
Já en það er hvort eð er sér áhugamál um flestar íþróttir hérna á huga. En ekkert um lyftingar. Þannig þetta er bara massívt take over. Ef steratröllin fá ekki e-ð þá taka þeir það bara… það er bara þannig, fokkar ekkert í gæja á sterum sko, sérstaklega ef hann beygir 3x sína eigin líkamsþyngd!!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..