Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

atli
atli Notandi frá fornöld 578 stig

Karlmenn (8 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Linda og Ragnar voru gift, en hann var mikil karlremba. Þó þau ynnu bæði fullan vinnudag leit hann aldrei við hússtörfum og hélt því fram að það væri hlutverk konunnar að sjá um þau. En eitt kvöldið þegar Linda kom heim úr vinnunni sá hún sér til mikillar ánægju að búið var að baða börnin, vaska upp, þvo þvott og hengja út, dýrinissteik var í ofninum og búið var að leggja fallega á borð og setja stóran og fallegan blómvönd á mitt borðið. Linda varð auðvitað forviða og heimtaði að fá að vita...

Lækkun á olíuverði (8 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég skil ekki alltaf hvernig fjölmiðlar hérlendis virka.?? Við fengum yfir okkur holskeflu frétta í haust um hækkandi verð á olíu en núna þegar verðið hrapar niður þegja fjölmiðlar. ?? Hvers vegna? Olía er eitt mikilvægasta hráefni til framleiðslu og dreifingar í hinum vestræna heimi. Allar sveiflur á verði olíu hafa áhrif á efnahagslífið. Hækkun olíverðs rýrir kaupmátt og þrengir að efnahagslífinu, það er því stórfrétt þegar olíuverð lækkar jafn mikið og það hefur gert undanfarna daga. Það...

Gengi krónunnar ? (15 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hverjir eru það sem eru að gera aðför að íslensku krónunni? Samkvæmt fréttum á mbl.is þá varð um 0,65% lækkun á gengi krónunnar í gær og gerðist það eftir mikinn þrýsting á á krónuna. Á venjulegu máli þýðir þetta að einhverjir aðilar hafi keypt bandaríkjadali eða aðra erlenda mynt í miklu magni. Þegar það gerist þá hækkar verðið á dollar vegna aukinnar eftirspurnar og verðið hækkar meira ef framboðið er lítið. Seðlabankinn reyndi að draga úr hækkuninni með því að auka framboðið en sú aðgerð...

800 milljónir ! (24 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er einn þeirra sem tel það vera fráleitt að Utanríkisráðuneytið skuli ætla að koma sér upp sendiráðsbyggingu í Japan fyrir 800 milljónir króna. Mér skilst að þegar Utanríkisráðuneytið ákvað að stofna sendiráð í Kína, nánar tiltekið í Peking, þá hafi sú röksemd verið notuð að hægt væri að samnýta það sendiráð vegna utanríkisþjónustu í Japan. Hvað varð um þá röksemd? Af hverju þurfum við sífellt að þola það að ráðamenn þessarar þjóðar sólundi skattpeningum að geðþótta? Er ekki full þörf á...

Hakkinen hraðastur í morgun. (8 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mika Hakkinen ók hraðast á föstudagsæfingunni. Besti tími hans var 1.40.262 og var hann 0.014 frá tíma Michales Schumacher sem var með annan besta tímann. DC var síðan í þriðja sæti 0.236 frá tíma Hakkinen og Barrichello var í fjórða sæti 0.379 frá tíma DC. Mikill hiti og raki var á meðan á æfingunni stóð og var brautin 40°c heit sem var ein ástæða þess að fyrstu tímarnir voru frekar lélegir. Michael Schumacher virtist vera í erfiðleikum að finna sig á brautinni og lenti m.a. örlítið útaf í...

Eru ekki allir sleipir í færeyskunni ??? (13 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hér koma tilkynningar úr færeysku blöðunum í dag, fyrst um ljósaskoðun (eða luktarskoðun) á bílum og svo um nagladekkin Lyktakanningin 2000 - er peran í lagi? At lyktirnar lýsa, er tín ábyrgd! Tað er rætt og slætt vandamikið, at bilar koyra við ljósum, sum ikki eru í lagi. Tað skal ikki nógv meira til enn at ganga eina ferð rundan um bilin og hyggja eftir, um øll ljósini lýsa, sum tey eiga. Best er at vera tvey um uppgávuna: annað situr í bilinum og tendrar fjarljósini, blunkljósini og...

Hvað er þetta? (12 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það þyrfti eiginlega að ræða betur þetta myndbrot sem er á http://www.hugi.is/unnar/nasa.mpeg . Í fyrstu mætti telja að þetta væri einhverskonar geimskip eða ufo. Að mínu mati þá gæti þetta allt eins verið svitadropi af geimfaranum sem tók myndina. Skoðið myndskeiðið betur og þá sjáið þið hvernig dropinn flýtur um í þyngdarleysi. ? :-)

Takk! (2 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ja hérna, mig langaði bara til að þakka ykkur fyrir það hversu hreinskilin þið eruð og hversu jákvæð og uppbyggjandi umræða ykkar er. Það er dálítið sérstakt samfélag að myndast hérna á þessum hluta Huga. Ég er einn þeirra sem hef tekið þátt í umræðum og greinaskrifum á Huga frá því að “hann” fór af stað. Ég hef að mestu einbeitt mér að áhugamáli mínu sem er Formúla 1 og hef haft gaman af. Ég hef undanfarna daga verið að fylgjast með öðrum “áhugamálum” hér á huga og ég verð að segja að...

Kæra Dagbók (12 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 7 mánuðum
SIGGA: Kæra Dagbók: Kærastinn minn var í dálítið furðulegu skapi þegar ég hitti hann á kránni og ég hélt það væri vegna þess að ég var dálítið sein, en hann sagði svo sem ekkert um það. Samtalið var erfitt og gekk hægt, svo mér datt í hug að fara á lítinn veitingastað svo við gætum talað einslega saman. Við fórum á mjög góðan veitingastað, en hann var enn frekar þögull og það var alveg sama hvað ég gerði til að létta honum lund. Ég var farinn að halda að það væri eitthvað að mér. Ég spurði...

Ron Dennis ekki búinn að gefa upp vonina. (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ron Dennis yfirmaður keppnisliðs MacLaren er ekki búinn að gefa upp alla von um að Hakkinen nái að vinna heimsmeistaratitilinn þetta árið. Ron bendir á að það séu 20 stig eftir í pottinum og að allt sem Hakkinen þarf að gera sé að vinna báðar keppnirnar þ.e. í Japan og Malasíu. “Hann er sterkur og einbeittur einstaklingur, það mun ekki breytast. Það hljómar e.t.v. eins og að það sé óvinnandi vegur en við munum mæta á brautirnar ákveðnir í að vinna”,sagði Ron. Það er hins vegar eitt atriði...

Viðtal við Jean Todt. (4 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Jean Todt sagði í viðtali eftir Indy-kappaksturinn að hann væri alveg í skýjunum. “Velgengni Ferrari hefur verði frábær á þessu tímabili. Þetta var áttundi sigur Ferrari á árinu og sjöundi sigur Michaels. Þetta er met hjá Ferrari aldrei áður hafa unnist jafn margir sigrar á á einu keppnistímabili og aldrei hefur liðið fengið jafnmörg stig á einu keppnistímabili. Á stundu sem þessari hlýtur maður að hugsa mikið um heimsmeistaratitilinn en jafnvel þó einungis tvær keppnir séu eftir á þessu...

Frábært hjá Ferrari ! (13 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Frábær sigur MS á Indy-brautinni setur hann nú í efsta sæti í keppninni til heimsmeistara. Lúaleg framkoma McLaren bræðra kom þeim ekki til góða og heiðursmaðurinn DC virðist hafa misst andlitið í malbikið. MS vildi ekki gera mikið úr þessu atviki á blaðamannafundinum, vildi frekar gleðjast yfir tvöföldum sigri Ferrari en að agnúast útí hegðun DC. Það var eins og að hverfa 3 ár aftur í tíman að sjá McLaren vélina springa. Það var nefnilega venja að annar eða báðir McLaren bílarnir féllu úr...

Tvö ný dekkjasett ! (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bridgestone ætlar að útvega öllum liðunum sem keppa á Indy tvö auka sett af dekkjum. Ástæða þessa er sú staðreynd að ökumenn þekkja ekki brautina og þurfa þar af leiðandi að aka hana oftar til að ná úr sér hrollinum. Annað dekkjasettið verður af harðri gerð og hitt af extra harðri gerð. Ekki verður heimilt að geyma notkun þessara dekkja til helgarinnar, heldur verða ökumennirnir að nota þau á æfingum á föstudag. FIA mun síðan safna dekkjunum saman seinnipartinn á föstudag til að koma í veg...

100.000 manns ! (4 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
100.000 íslendingar horfa á beinar útsendingar frá Formúlu 1 samkvæmt því sem einn kostunaraðili að útsendingunum hefur sagt mér. Það er ótrúlegt að RÚV skuli í annað sinn á þessu keppnistímabili ætla sér að rjúfa útsendingarnar. Síðast var það Kristnihátíðin sem stóð í mönnum og núna er það fréttaþáttur sem ætti að vera í lagi að færa til í dagskránni. Það spunnust miklar umræður um það í fjölmiðlum í sumar af hverju svo fáir mættu á Kristnihátíðina. Ástæðan var einföld, þjóðin beið heima...

Ljóskubrandarar (6 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hér fyrir néðan eru nokkrir brandara sem tengjast háralit á kvennfólki. Þeim sem kann að virðast efni þetta ærumeiðandi eða tengjast fordómum á einhvern hátt, vinsamlegast hafið samband við vefstjóra Huga og hann mun síðan eflaust hafa samband við mig. Af hverju tvöfalda ljóskur ekki uppskriftir? Vegna þess að ofninn kemst ekki hærra en 350°c Varstu búinn að heyra um Ljóshærða úlfinn? Hann festist í gildru, og nagaði af sér 3 lappir og var samt fastur. Varstu búinn að heyra um ljóskuna sem...

Keppnin á morgun ! (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það verður gaman að fylgjast með startinu á morgun. MH hefur sýnt það á þessu keppnistímabili að þó hann hafi ekki verið á ráspól að þá hefur hann náð forystu eftir fyrstu beygju. Tvisvar sinnum hefur hann verið í þriðja sæti á rásmarki en samt náð forystunni. MS þarf því að gæta sín vel þó hann hafi ráspólinn. Það vinnur hins vegar með MS að RB er fyrir aftan hann og gæti reynt að renna bílnum sínum strax til hægri til að koma í veg fyrir atlögur frá MH. Ef hann myndi gera það þá fengi hann...

Flest stig frá upphafi. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Listinn hér að néðan er nokkuð skemmtilegur. Listinn sýnir hverjir hafa fengið flest stig til heimsmeistaratitils samtals og eins og sjá má þá er Michel Schumacher í þriðja sæti. Þess má geta að David Coultard og Mika Hakkenen eru á þessum lista. DC er í 21. sæti með 212 stig og Mika Hakkinen er 24. sæti með 201 stig. 1 Alain Prost 798.5 2 Ayrton Senna 614 3 Michael Schumacher 570 4 Nelson Piquet 485.5 5 Nigel Mansell 482 6 Niki Lauda 420.5 7 Gerhard Berger 385 8 Jackie Stewart 360 = Damon...

Eins og hver? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er stundum eins og sumir gangi ekki á öllum. David Coultard er greinilega að reyna að nýta sér þá athygli sem fylgir því að sigra í Formúlu 1 kappakstri. Það sem vekur furðu mína núna er að hann skuli vera að væla yfir því að Michael Schumacher hafi ekið í veg fyrir hann í startinu og þegar hann reyndi að taka framúr. Við sem höfum fylgst með F1 munum eftir því þegar Mika Hakkinen var uppá sitt besta og náði hvað eftir annað að vera í fremstu rásgrind að hann hafði það eitt markmið að...

Quake í baði? (0 álit)

í Quake og Doom fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Bandaríski sjóherinn hefur þróað leið til að senda tölvupóst neðansjávar, en hingað til hefur það verið erfitt þar sem útvarpsbylgjur leiða ekki vel í vatni. Það var bandaríski kafbáturinn USS Dolphin sem sendi fyrsta tölvupóstinn um 5 kílómetra, tölvupósturinn innihélt myndir og texta. Eina vandamálið er að hingað til hefur ekki náðst meiri hraði en 2.4 Kbps, þannig að það er ekki enn fýsilegur kostur að Quake-a neðansjávar (eða í baði).

MS vs. DC vs. MH etc.. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Takk GUNZi fyrir að sýna viðbrögð. Reyndar ættu þessi skrif heima á korknum en ég verð engu að síður að fá að svara þér á þessu vettvangi. Ég get alls ekki fallist á það að ég hafi skrifað eitthvað illa um DC ég var einfaldlega að benda á það að DC og MH færu oft í þann farveg að kenna öllu öðru um en eigin mistökum þegar hlutirnir ganga ekki upp hjá þeim. Varðandi mistök MS um helgina þá hef ég ekki séð það enn eða heyrt að hann kenni bílnum um hvernig fór, hann gerði einfaldlega þessi...

Frábær keppni! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Kappakstrinum í Magny Cours lauk með sigri David Coultard sem sýndi áður óþekkta grimmd þegar hann tók framúr Michael Schumacher. DC er svo sannarlega að stimpla sig inn sem kandidat til heimsmeistara með þessum sigri og keppnin um heimsmeistaratitilinn er galopin

MacLaren liðið ??? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er alveg ótrúlegt að alltaf þegar hlutirnir ganga ekki upp hjá Mika Hakkinen og David Coultard að þá er aðstæðum s.s. bílunum, öðrum keppendum, lofthitanum, dekkjunum, plötunni undir bílnum, viðgerðarmönnunum, auglýsingaskiltunum ofl. ofl. kennt um að þeir hafi ekki náð betri árangri. Hvernig væri að fara að skoða það að það geti verið eitthvað að aksturslagi þessara kappa. Af hverju var t.d. bíllinn hans DC ekki klár í slaginn í byrjun tímatökunnar í morgun. Gæti það verið að DC hafi...

Frábær tímataka. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Michael Schumacher náði besta tímanum í tímatökum og verður því í fyrstu rásgrind á morgun þegar keppnin hefst. David Coultard tókst vel upp en hann lenti í því að nota tvo bíla í tímatökunum þar sem aðalbíllinn hans var ekki í lagi í fyrri hluta tímatakanna. Barrichello varð síðan í þriðja sæti. Tímatökusnillingurinn Mika Hakkinen lenti í fjórða sæti og virðist enn vera fjarri góðu gamni. Það virðist vera að hann sé hættur að bíta frá sér. Villeneuve sem náði 7. sætinu kemur til með að vera...

Fyrstu tímar frá æfingum í Magny Cours í morgun. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Michael Schumacher byrjaði að leggja línurnar fyrir helgina með því að vera fyrstur á æfingum í morgun. MS var lengst af einni sek. á undan þeim sem næstir komu. Mika Hakkinen náði þó að bæta sig undir lokin og var tími hans þá um 0,5 sek. lakari en tími Michaels Schumachers. Yfirburðir Ferrari bílsins á brautinni setur hins vegar fordæmið fyrir því hvernig keppnin um helgina kemur til með að enda. Það var Nick Heidfeld sem náði þriðja besta tímanum í morgun, enda voru bæði David Coultard og...

Útsending á RAI uno (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Samkvæmt því sem ég fann á vefsíðu http://www.raiuno.rai.it/raiuno/index.htm þá ætti að vera útsending á Rai Uno eins og sjá má af þessu hérna. Prove sabato 1o luglio 2000 ore 13.00, RaiTre Warm up domenica 2 luglio 2000 ore 9.25, RaiUno Domenica 2 luglio ore 13.40 RaiUno Að vísu er tímatakan á RaiTre. Ég ætla að reyna að fá staðfestingu á þessu, en ef þetta er satt þá segi ég Bella Italia; Forsa Ferrari !!!! e grazie.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok