Mig dreymir mjög oft að ég sé að fljúga. Þá er það oftast þannig að ég verð að einbeita mér alveg að fluginu til að falla ekki til jarðar, eins og maður verði að reyna á sig til að fljúga eða eitthvað. Samt dett ég ekki til jarðar, bara svíf. Ef mig dreymir ekki að ég sé að fljúga þá er ég að drepa einhvern eða einhver að drepa mig, ekki mjög skemmtilegt! Það kemur líka oft fyrir að mig dreymi að ég sé að detta og þá vakna ég oft við það. Ég á draumráðningabók sem gefur ekki alveg sama svar...