Nú gæti vel verið að ég sé voða voða út úr, þar sem ég hef aldrei keypt mér aukapakka fyrir The Sims. En mér finnst að það ætti að vera hægt að fá gæludýr svo sem hunda og ketti, hamstra, kanínur eða jafnvel hesta. (Það minnir mig á það að ég myndi líka vilja hafa bíla og bílskúra).

Svo væri líka gaman að það kæmu stundum íkornar í trén eða býflugur í blómin. Þá myndi kannski líka verið svalt að hafa býflugnabú og ef einhver myndi fikta í þeim myndu þær ráðast á hann!

Kannski er þetta allt saman alger óþarfi en mér fyndist þetta cool.

Kári Emil
————————–
Af mér hrynja viskuperlurnar…