Ég sá Jay Leno í gær og íslenska poppprinsessan okkar hún Björk var gestur hjá honum. Ég verð að segja það að ég varð ekkert smá hissa á því hvað allir virtust fíla hana, það var öskrað og öskrað og fólk kallið til hennar : i love you, you are so beautifull! Er Björk alltaf að verða frægari og frægari?
Ég meina, ég vissi alltaf að hún væri vinsæl og allt það…en ekki svona mikið!!! ég veit um svo marga sem segja kannski það er flott hvað hún er öðruvísi en fíla ekki tónlistina hennar og hlusta ekki á hana. Mér finnst Björk alveg ágæt, en mér finnst samt flest lögin hennar ekkert svo góð…ég skil eiginlega ekki af hverju hún er svona rosalega vinsæl!!!

jonsagella :)