Það hefur aldrei tíðkast í Gettu betur að ganga út frá heimaleikjareglu. Gott dæmi um þetta er að í síðustu viðureign Verzló og MA var ákveðið að Verzló keppti sinn ,,heimaleik" á Akureyri. Það er vel skiljanlegt að sjónvarpið vilji ekki senda tvisvar sinnum út frá landsbyggðinni þar sem það er kosnaðarsamt og þeir eru með góða aðsöðu í bænum. Sú regla er samt yfirleitt höfð að þegar landsbyggðarlið kemst í 8-liða úrslit er ein keppni send út utan að landi og í þetta skiptið var það Akureyri...