Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

arnig
arnig Notandi frá fornöld 516 stig

Re: Byrjenda ráð

í Golf fyrir 22 árum, 5 mánuðum
links: ef fæturnir eru í átt að flaggstöng ertu að miða lengst til hægri. Þú átt að miða þannig að fæturnir séu samhliða ímyndaðri línu frá bolta í flagg. Ég myndi hins vegar eindregið ráðleggja þér að leita til kennara, það er ekki hægt að kenna golf í gegnum netið án þess að þekkja þig og þína líkamsbyggingu og almenna getu neitt. Gangi þér sem best !!!

Re: Hvernig á að gera skjáskot?

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ýtir á “PrintScreen” takkann á lyklaborðinu sem er í efstu röðinni á lyklaborðinu. Því næst opnarðu forritið Paint sem fylgir með öllum Windows útgáfum og þar velurðu ‘Edit’ og ‘Paste’. Þá ætti skjámyndin að birtast. Til að vista velurðu ‘Save As’ og þú verður að velja *.jpg í ‘Save As Type’ valmyndinni. Vonandi að þetta hafi hjálpað :)

Re: Úrslit dagsins

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
AC Milan er rosalegt lið !! Svakalega er gaman að sjá Chievo standa sig svona vel!

Re: Innanhús Aðstaða 2

í Golf fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ekki sem verst !

Re: Ný heimasíða!

í Golf fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það verður spennandi að sjá þetta. Úlfar klikkar ekki á svona hlutum!!

Re: Elsti maður

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Peter Shilton, gamli landsliðsmarkvörður Englands spilaði í ensku þriðju deildinni þegar hann var kominn yfir fimmtugt hérna á sínum tíma.

Re: Elsti maður

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Oliver Kahn var ennþá að spila með mér hjá Doncaster þegar hann var 44 ára !!!!! - og stóð sig vel.

Re: Sunderland - 1.tímabil

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góður árangur með svona arfaslakt lið sem Sunderland er!! Til hamingju !

Re: Seinni hálfleikur

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er góður punktur, ég veit ekki um neinn sem fylgist með þýska boltanum. Ég hef ekki og mun ekki horfa á einn einasta leik í þýska boltanum, þetta er alveg með ólíkindum leiðinlegt.

Re: Alex Ferguson - Fyrri hluti.

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábær grein um frábæran þjálfara. Mér leiðist reyndar Ferguson óskaplega, en ég viðurkenni að hann er mjög snjall. Þú gleymdir hinsvegar að minnast á hvaða tyggjótegund hann notar, það er jú lykillinn að þessu öllu hjá honum :)

Re: Skjáskot

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég sendi inn skjáskot um daginn og hef ekkert heyrt meira um það?

Re: Tölfræði

í Golf fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Um hvað þá nákvæmlega ??

Re: Vandræði með að formatta!!!!

í Windows fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ef það er eitthvað neðst niðri þarftu að slökkva á því líka. Með hvaða útgáfu af Win ertu með?

Re: Gestabók!

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Farðu undir “Leiðbeiningarhornið” hérna til vinstri þar eru PHP gestabækur !!

Re: Áhugamálið

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Finnst þér þýski boltinn opinn? Bayern München spilar leiðinlegasta bolta sem ég hef séð.

Re: Dacourt farinn til Roma

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég skil ekki alveg að lið einsog Roma sé að kaupa mann sem kemst ekki í lið sem er um miðja deild á Englandi.

Re: Vandræði með að formatta!!!!

í Windows fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Farðu í task manager og lokaðu öllum forritum sem þú ert að nota og prófaðu síðan að formatta. Þú gætir líka prófað að formatta í gamla “góða” Dos-inu.

Re: w.b.a

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það var mikið að menn þora að segja frá því þegar illa gengur !! Ég er stoltur af þér að segja þetta því allar sögur hérna hafa snúist um eintóm afrek. Gangi þér vel !!

Re: korkakerfi

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
voðaleg viðkvæmni er þetta!! ég sagði aldrei að PHP réði ekki við korkakerfi, ég sagði bara að ég teldi ASP betra! - það er aðeins mín skoðun, enginn heilagur sannleiku

Re: Drif

í Windows fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú ert að tala um disk partitioning. Ég myndi setja þennan póst inná vélbúnaður, mun líklegra að fá svör þar.

Re: Gestabók!

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Kíktu inná… http://www.codeproject.com/asp/guestbook.asp http://www.codeproject.com/aspnet/GuestbookLK.asp

Re: Lengi.

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já, þetta fer eftir því hvað þú ert með öfluga tölvu. Leikurinn velur í upphafi þær stillingar sem passa best, það er mjög að fara bara eftir þeim.

Re: gera tölvuna að heimasíðugeymslu

í Windows fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hvar á gaui.is fannstu þetta, sá ekkert þarna um þetta mál ?

Re: For Admins.

í Forritun fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Byrjaðu endilega að tala um leikjaforritun, ekki veitir af því að rífa þetta aðeins upp hérna !!!

Re: Listi

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hvað er Werder Bremen að gera þarna eiginlega ?!?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok