Í fyrsta lagi myndi ég mæla með því að þú fengir þér eitthvað heimusíðuforrit, t.d. FrontPage. Það er mjög takmarkað sem hægt er að gera með yahoo.com í þessum efnum.
Það urðu miklar breytingar á Visual Basic þegar það fór yfir í .Net umhverfið, þannig að ég held því miður að þessi bók nýtist þér ekki að fullu, nema þú sért með .Net Hvers vegna ertu annars að læra Visual Basic, ertu í skóla eða bara áhugamál??
Að mér fyndist þetta ætti að vera korkur en ekki grein var engan veginn beint til þín heldur til admin síðunnar. Mér finnst bara frábært að einhver nenni að skrifa hérna á Ítalska boltann og rífa þetta aðeins upp!!!
Munurinn felst í því aðallega að Visual Basic .Net byggir á .Net Frameworkinu frá Microsoft. Það inniheldur gríðarlega helling af klösum sem þú getur notað í Visual Basic .Net (sem og C++ .Net, C# .Net og ASP.NET).
Frábært að halda honum hjá AC Milan, enda er AC Milan langbesta lið í heimi !!! -en, á þetta að vera grein? Þetta einhvern veginn líkist frekar korki !!!
Til að láta mann æfa sig upp í nýrri stöðu þarftu að velja “Training” á aðalvalmynd liðsins þíns. Því næst að velja eitthvert af æfingaprógrömmunum sem þú notar ekki og velja “Edit”. Þar neðst er boðið uppá möguleikann, “New Side”. Þú einfaldlega síðan dregur þá leikmenn yfir í þetta prógramm sem þú vilt að æfi sig upp í nýrri stöðu. …þetta er skýrt mjög vel í bæklingnum sem fylgir leiknum.
Mikið er vinsælt að spyrja hverjir séu efnilegastir, þriðja eða fjórða skiptið núna síðasta mánuðinn :) Ég segi enn og aftur að Magnús Lárusson (GKj) og Tinna Jóhannsdóttir (GK) eru efnilegust að mínu mati. Ég gæti vel trúað þeim til þess að spjara sig vel á Toyota-mótaröðinn núna í sumar.
Minn besti árangur er að verða meistari með Wolves 30 ár í röð. Þetta var í CM2, og leikurinn hætti eitthvað um 2032 minnir mig, þannig að ég fékk ekki að halda áfram!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..