Úlfar Jónsson og Kristinn G Bjarnason eru að leggja lokahönd, þessa dagana á nýja og mjög svo sniðuga heimasíðu. Hún mun hafa slóðina golfkennsla.is og þar verður golfkennurum gefinn kostur á því að koma frá sér kennsluefni og greinum sem hinn almenni golfiðkandi getur skoðað á þessari síðu. Einnig hef ég heyrt að þeir ætli að vera með hollráð vikunnar og sitthvað í þeim dúr. Þetta er alveg frábært framtak hjá þeim félögum. Vil ég hvetja ykkur öll til að fylgjast með því þegar þessi síða opnar en það mun vera einhverntímann í lok þessa mánaðar.