Ef þér finnst ekkert mál að slá með Driver þá einfaldlega kanntu það ekki. Að slá með Driver er ekki bara að þrusa eitthvað út í loftið, heldur að staðsetja sig réttum megin á brautinni fyrir næsta höggið. Teighöggið er að mínu mati það mikilvægasta í golfi. Ef teighögg misheppnast getur það auðveldlega kostað nokkur högg, ef pútt misheppnast er það bara eitt högg.