Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hot Dog með Led Zeppelin? (0 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 4 mánuðum

Bwahahahaha! Uppsafnaðar myndir? (13 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Klikkið á yfirlitið yfir myndirnar hérna á Háhraða. Það er hressandi.

Það er allt í uppnámi hérna!!! (4 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hvernig líst fólki svo á breytingarnar? Sjálfum finnst mér þetta allt í lagi… gefur stjórnendum kannski smá meira svigrúm varðandi trailera fyrir bíómyndir, þar sem sömu, gömlu myndirnar blasa ekki alltaf við í hvert skipti sem maður kíkir inn á háhraða. Ohhh… ég er svo þakklátur.

Gleðilegan Þakkargjörðardag, kæru hugarar! (46 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég er svo þakklátur fyrir lífið. Dreifið ástinni. :* Og ég ætla ekki að segja ykkur að sleppa því að koma með einhver komment varðandi það að “þetta sé nú bandarísk hátíð”, því þá verður fyrsta svarið við korknum sennilegast “þetta er bandarísk hátíð” (þótt það verði það nú sennilegast hvernig sem fer). Ég ætla bara að vera ánægður og þakklátur áfram. Ok.

Ég var að hugsa smá í kvöld... og vá! Ég er bara eftir mig! (11 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Og svo fór ég á msn og var eitthvað að spjalla. Og svo skrifaði ég af einhverri ástæðu orðið “Jón”. Og þá fór heilinn minn allt í einu í gang og unni sér ekki hvíldar fyrr en hann hafði komist að því hvað það var nákvæmlega, hvað var að valda honum óróa. Og svo loksins fattaði ég það… og þá leið mér eins og kjána. Ef þú tekur orðið/nafnið “Jón” og bætir stafnum “l” fyrir framan það, hvað færðu þá? Jú… mikið rétt! LJÓN!!! Og þetta hefur hvorki ég, né nokkur annar sem ég hef komist í kynni...

Tilvitnanir í Winston Churchill (10 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég sá svona korka um Elvis Presley, John Lennon og Queen og ákvað að gera bara einn slíkan sjálfur. Nú er það Winston Churchill. A fanatic is one who can't change his mind and won't change the subject. A love for tradition has never weakened a nation, indeed it has strengthened nations in their hour of peril. All great things are simple, and many can be expressed in single words: freedom, justice, honor, duty, mercy, hope. Although prepared for martyrdom, I preferred that it be postponed. An...

Hvar fær maður rótarbjór hérna á klakanum? (30 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ha? Einhver? Þeir hafa víst verið að selja þetta á amerískum dögum í Hagkaupum upp á síðkastið, en veit einhver hvort þetta er selt einhversstaðar, bara svona að staðaldri? Og já, ekkert svona “rótarbjór bragðast eins og tannkrem”. Það er staðreynd (og ætti í raun að vera á allra vitorði) að Colgate tannkremið eins og við þekkjum það í dag kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en 1896 í New York. Þá hafði Charles nokkur Hires, frá Philadelphia, selt kolsýrðan rótarbjór í flöskum í rétt þrjú ár....

? (0 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 4 mánuðum

Veit einhver hvar hægt er að leigja... (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Shichinin no samurai annars vegar, og Das Boot hins vegar? Hef eitthvað verið að reyna að finna þessar myndir á leigum hérna í Hafnarfirði, en án árangurs. Ég hef þó ekki leitað neitt markvisst, en ef einhver veit um leigu hér á höfuðborgarsvæðinu (helst í Hafnarfirði/Garðabæ) þá má sá hinn sami alveg láta mig vita. Takk. :)

Fróðlegt væri að sjá... (1 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 4 mánuðum
..tölurnar yfir virkni á Sagnfræðiáhugamálinu fyrir undanfarna mánuði, og nóvembermánuð, er þær tölur berast. Sér í lagi í ljósi greina Lecters um Rommel núna upp á síðkastið. Það væri skemmtilegt að sjá hvaða áhrif þær hafa haft á áhugamálið.

800mm fallbyssukúla borin saman við hinn rússneska T-34. (17 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Rakst á þessa mynd þegar ég var að vafra um Wikipedia og fannst ég þurfa að deila henni með ykkur. Þarna sjáið þið s.s. 80cm fallbyssukúlu í samanburði við rússneskan T-34 skriðdreka. Þessi “skotfæri” voru m.a. notaðar í járnbrautabyssurnar “Þunga Gústav” (Schwerer Gustav), sem fyrst var notuð í umsátrinu um Sevastopol, og “Dóru” (Dora) sem beitt var í orrustunni um Stalíngrad. Áætlað að nota ámóta fallbyssur í hina fyrirhuguðu P-1500 “Monster” skriðdreka. Þetta 1500 tonna skrímsli átti að...

Saga Mervils (4 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég sendi þessa klausu inn sem svar við þessum þræði á forsíðunni, og ákvað (eftir stutt spjall við bróður minn, sem nýlega fræddi okkur öll um sögu Lu-kexins hér á sorpinu) að kannski væri best að senda þetta líka inn sem grein hérna til þess að sem flestir fengju notið af þessari dæmalausu… tjöru. So here goes… Þar sem svar er komið varðandi mjólkina finn ég mig knúinn til þess að færa fólk inn í ljósið varðandi draslið á enda skóreima okkar allra (eða flestra). Drasl þetta ber í raun...

Reynslusögur Brynjólfs (SeveN|Jólinn) (14 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Jájá.. kallinn lætur enn og eftur til skara skríða. http://www.hugi.is/forsida/threads.php?page=view&contentId=2551143 Ohhh mér finnst svo gaman að skrifa. Njótið vel. ;)

Tannlækningar/nasismi 101: Að rífa úr fólki tennur. (23 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Jæja, vegna þeirra gífurlegu vinsælda sem reynslusögur mínar hafa uppskorið hér á huga og mikillar eftirspurnar eftir nýrri viðbót í safnið, og vegna þess einfaldlega að í því ástandi sem ég er í núna er ég algjörlega ófær um það að gera nokkurn skapaðan hlut annan en að sitja við tölvuna mína og munda mig við að hripa einhver fátækleg orð niður á lyklaborðið, hef ég ákveðið að deila með ykkur reynslu minni af því, þegar dregnir voru úr mér endajaxlar í neðri góm. Ég mun reyna að lýsa...

The Fallen með Franz Ferdinand. (4 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hversu öfgamögnuð tónsmíð er það lag?! Svei mér, þá! Á reyndar við nýja diskinn þeirra í heild sinni líka, en það er eitthvað við þetta lag sem lætur mig langa til að dansa í hjartanu á mér.

Hvað finnst þér um ice.Phaedo gaurinn? (0 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 6 mánuðum

Geðveikt eru BAD-gaurarnir pro með hnífa. (115 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 6 mánuðum
http://www.alliedtribalforces.com/bf2/stats/%3C%3DBAD%3D%3EGen.Scorpion.htm - 486-17. http://www.alliedtribalforces.com/bf2/stats/%3C%3DBAD%3D%3Edrdeath.htm - 328-3. http://www.alliedtribalforces.com/bf2/stats/%3C%3DBAD%3D%3Efef.htm - 290-5. http://www.alliedtribalforces.com/bf2/stats/%3C%3DBAD%3D%3EYankee.htm - 233-10. http://www.alliedtribalforces.com/bf2/stats/%3C%3DBAD%3D%3ESKRAT1.htm - 84-5. Ég finn lykt af maðki. Í mysu. Að skipuleggja samsæri.

Ég klemmdi tunguna mína á karamellukexi. (29 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Nöldur? Kannski. Tilraun til að sýna fram á hversu súrrealísku lífi ég lífi? Eflaust. Ég vil bara byrja á að vara fólk við því að borða McVities karamellukex, sérstaklega ef það fær þá flugu í hausinn að troða heilu kexi upp í sig í einu. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég sat hér fyrir framan tölvuna við heimasíðusmíð. Og þar sem almennt verður að teljast vonlaust að smíða heimasíður án einhvers snarls (eða jafnvel snakks) þá hafði ég mér til halds og trausts McVities...

Rólegur á hittninni stöffið... (39 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þúst crap! Þessi gaur er bara eins og ég í BF! Skillz. Mad Skillz!

Könnunin? Jahá... einn af þeim. (12 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Sko… eins og stendur eru 4% þeirra 75 sem svarað hafa könnuninni hingað til “Gunnery Sgt.” Það þýðir að 3 spilarar og notendur huga hafi náð þessu ranki. En… þið vitið. Nei? Ok, þá vil ég spyrja. Er fólk virkilega svona sorglegt að það ljúgi að könnunum, sem ekkert vit hafa og eru algjörlega ófærar um að svara fyrir sig. Það er eins og að stela nammi af þroskaheftu barni í hjólastól. Á sprungnu dekki. Skamm, þið (fyrir utan hetjuna okkar, hann sigga litler) sem svöruðuð Gunnery Sergeant. Skamm!

Battlefield samfélagið er óhult að sinni! (20 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Já, einhverjir hefðu nú áætlað að tveir skemmtilegustu gaurarnir og bara mestu eðalblóð Battlefield samfélagsins (þ.e. SeveN|Jolinn gaurinn og FatJoe) væri með hvorn annan á msn, en það kom þó í ljós nú í kvöld, þegar mest á reyndi, að svo var ekki. Hvað veldur þessari óréttlætanlegu málahögun er auðvitað ofar mínum skilningi, sem og allra þeirra sem eitthvað vit hafa á þessum málum. Áður en allt fór úr böndunum var þó ráðin bót á þessu; Jói sendi mér msn-ið sitt og ég addaði honum, og...

Svona létt pæling bara. (20 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hverjum ætla kommarnir nú að kenna um allt sem miður fer í lífi þeirra, núna þegar Davíð er hættur í stjórnmálum?

Deyfingar! (57 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Var hjá tannlækni áðan og fékk tvöfalda deyfingu (í efri og neðri góm, vinstra megin). Ég held að ég hafi aldrei nokkurn tíman verið eins dofinn og ég er núna. Ég finn ekkert fyrir kinninni minni upp undir auga. Kjálkinn minn hefði alveg eins getað bókað flug til Benidorm og haldið á brott án mín, og ég hefði ekki tekið eftir því. Sama gildir um tennurnar vinstra megin í munninum, þarf að negla þeim duglega saman til að ganga úr skugga um að þær séu enn til staðar. Neðri vörin mín lafir...

Þetta skeið er liðið. (36 álit)

í Battlefield fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Það hefur eitthvað verið talað um það hér á huga, að fólk sé að gefa BF2 upp á bátinn og vonist samhliða því, til þess að fólk byrji aftur að spila BF42. Auðvitað skemmtileg tilhugsun, en mér þykir fyrir því að segja það (og það er engin lygi, þessi leikur hefur verið talsverður hluti af lífi mínu síðastliðin 3 ár), en þetta skeið er liðið. BF42 er búinn og BF2 tekinn við. Ég er auðvitað ekki að útiloka eitt og eitt blast hér og þar, hafi fólk áhuga á því, en ég ætla að leyfa einhverjum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok