Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kettir (0 álit)

í Kettir fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Kittý sem er týnd! :(

OA.is (9 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hæhæ. Það er mikið búið að ræða hérna um fitu og að vera feitur. Langaði mig að benda fólki á OA samtökin. Við í O.A. samtökunum höfum fundið leið til að losna undan áþján ofáts með því að deila reynslu okkar og styðja hvert annað. Við bjóðum velkomna alla þá sem vilja losna undan matarfíkn. Við höfum engin þátttökugjöld. Hver deild er rekin með okkar eigin frjálsu framlögum og samtökin hafna allri utanaðkomandi fjárhagsaðstoð. O.A. samtökin tengjast engum félagsskap öðrum, pólitískum,...

CPU usage 100% ..hmm.. (6 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Tölvan mín er eitthvað að snappa held ég. Hún tekur upp á því að verða geðveikt hægvirk og segir að CPU sé að keyra á 100% sem bara passar alls ekki. Ég er ekki með óeðlilega mörg forrit í gangi eða að gera neitt sem ég er ekki vön að gera. Ég er búin að tékka á vírusum og keyra ad-aware og spybot og ekkert kemur út úr því. Einhverjar hugmyndir? Ég formattaði hana í fyrradag og er ekki búin að setja neitt óeðlilegt inn. Er að keyra xp home og búin að setja inn service pack 1 og allt critical...

Gröftur.. (1 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég er með 2.5 vikna kettlinga og þeir eru alveg búnir að opna augun, en núna eru þau límd aftur með greftri. Get ég lagað þetta sjálf eða þurfa þeir að skreppa til dýralæknis? Ég hef aldrei séð svona áður á kettlingum :/

Úthreinsun eftir fæðingu. (1 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæhæ. Læðan mín hún Bangsi var að eignast kettlinga í fyrradag. Áðan sá ég svona blóð-slím leka aftan úr henni og var að spá hvort það sé eitthvað vesen eða hvort þetta sé venjuleg úthreinsun eftir gotið?

Morgunógleði katta? (2 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Er hún til? :) Læðan mín er kettlingafull, gengin sirka 3 vikur og þegar hún fær sér að borða ælir hún oft. Hún er alveg hress annars og hleypur um allt að leika sér við hina kisuna okkar. Hún fær alltaf sama matinn, Iams, og hefur étið hann án vandræða síðan hún fæddist. Geta þetta verið hormónabreytingar hjá greyið kisu litlu eða kannski bara græðgi?

Litur á vegg í innlit-útlit? (2 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hæhæ. Ég var að horfa á innlit-útlit og þar var verið að sýna íbúð hjá jógakennara og mér fannst svo fallegur litur á stofunni hennar og er að spá í að herma .. en ég náði ekki alveg litnum eða hvar hún fékk hann. Veit ekki einusinni hvort hún sagði það. Ég heyrði eitthvað um pastel-grátt með smá brúnum útí .. en æji .. ég er svo hrædd um að ef ég fer í málningarbúð komi ég heim með eitthvað allt annað og verði óánægð. Tók einhver eftir þessu og veit hvaða litur þetta er eða hvar ég get...

Bangsi kynvillingur. (5 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég uppgötvaði það í dag að einn af köttunum mínum, Bangsi, er ekki karl eins og ég hafði alltaf haldið. Mig var nú eitthvað farið að gruna því hann er 9 mánaða og ekki kominn með kúlur en fékk það staðfest í dag þegar ég sá einhvern hverfisfressinn vera að hamra hann/hana á miðju stofugólfinu í dag. Ég dó auðvitað úr hlátri. Þarna kom líka útskýringin á því afhverju þessi umræddi fress var alltaf að koma inn og merkja sér allt (viðbjóður .. þurfti að kaupa fullt af svona airwick ilm-dæmi til...

Meira um að skrifa bækur .. (4 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Segjum að ég sé búin að skrifa bók og langi að fá hana útgefna, læt ég sjálf prófarkalesa hana eða lætur bókaútgáfan gera það?

Viltu hjálpa Brandi litla? (13 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hæ Hugarar. Ég á 4 yndislega ketti sem heita Kjúlli, Brandur, Bangsi og Snælda. Því miður er búið að vera að þróast vandamál á heimilinu síðustu mánuði. Málið er, að Brandi og Kjúlla hefur aldrei samið mjög vel. Þetta byrjaði nú sakleysislega með smá svona urri hér og klóri þar, en er núna orðið að meiriháttar vandamáli því þeir verða alveg óðir þegar þeir sjá hvorn annan og slást þannig að hárflyksur fjúka og það blæður úr nebbum. Við mannfólkið á heimilinu höfum tekið þá ákvörðun að láta...

Er Bush að fara með heiminn til helvítis? (0 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum

Langar í hund en veit ekki neitt. (5 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hæ fólk. Ég á 4 ketti og er ólétt, er í lagi að ég fái mér hund? Hvernig kemur hundum/köttum/börnum saman? Er mikið vesen að eiga hund? Þarf maður að fara oft með þá út að labba og kaupa margt áður en þeir koma? Ég bý í kjallara með sérinngangi og það eru 3 hæðir í húsinu .. þarf allt húsið að samþykkja hundinn? Á efstu hæðinni eru leigð út herbergi, þarf þá hver einasti leigjandi að samþykkja voffa? Hehe .. ókei ég er hætt að spurja í bili. Öll ráð vel þegin :)

Kittý fundin - orðin klikk! (19 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hæ Hugarar. Ein af köttunum mínum sem er búin að vera týnd í mánuð (fannst reyndar fyrir 2 vikum en strauk strax aftur) fannst í gær. Til öryggis lokaði ég hana inni í herbergi með mat og sand svo hún stryki ekki aftur. Hún var svo breytt eftir að vera á flækingi, urraði á alla hina kettina mína, líka sinn eigin kettling. Hún hljóp bara fram og aftur um íbúðina og krafsaði í gluggana og vildi bara komast aftur út. Hún var ekki svona, hún var bara róleg innikisa sem fór stundum út að dinglast...

Á gamalt, veikt fólk að keyra? (21 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Komiði sæl Hugarar. Ég var að velta því fyrir mér hvort reglurnar um þetta væru ekki of linar? Ég hef heyrt um gamalt fólk sem er með hjartasjúkdóma, alzheimer ofl. sem eru ennþá með bílpróf. Það er eldri maður (ca. 85) sem býr á hæðinni fyrir ofan mig. Hann er með veikt hjarta og MJÖG hægvirkur (hann er sirka 3 daga að dútla í einu litlu beði úti í garði) en hann keyrir bílinn sinn samt. Stundum leggur hann hálfur í mitt stæði og ég hef séð hann keyra og það er hræðileg sjón. Hann er svo...

rakspíri .. vrúmm. (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hey, dó enginn annar en ég úr hlátri þegar þeir heyrðu auglýsinguna um einhvern shumacher rakspíra? Þetta var hallærislegasta auglýsing sem ég hef séð í langan tíma .. kerlingin sem las auglýsinguna var fyndnust … vhrúmm vhrúmm. Glatað Lilja

Hvernig er kötturinn þinn á litinn? (0 álit)

í Kettir fyrir 22 árum

Eru stelpur hérna? (5 álit)

í Formúla 1 fyrir 22 árum
Ég var að spá í að koma af stað smá umræðu um hversu myndarlegir ökumennirnir eru. Ég býst við því að það séu karlmenn sem eru í meirihluta á þessu áhugamáli og bið ég þá að skipta sér ekkert af :) nema þeir hafi alvöru skoðanir á málinu. Mér amk. finnst Montoya rosa sætur, verst hvað hann er lítill. Mér finnst Ralph sætari en Michael Schumacher. Ókei, þetta er eiginlega bara smá djók korkur, en mér datt bara í hug að brjóta upp hefðbundnu umræðuefnin hérna. ;)

Bush & Sharon (0 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum
Er ekki kaldhæðnislegt að Ariel Sharon hlusti ekki á Bush? Loksins fattar kannski Bush núna að Ariel Sharon hafi allan tímann verið með puttann í rassinum á Bush og sjái raunveruleikann.

2 forvitnar stelpur... (8 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum
Hæhæ .. Við erum 22 og 25 ára stelpur og vorum að spá .. Okkur langar svo að prófa kannski eins og eitt kvöld að spila með einhverjum sem nennir að kenna okkur. Viðkomandi verður að hafa húmor fyrir newbie-stelpum ;) Áhugasamir (vonandi einhverjir ;) endilega sendiði okkur skilaboð aphexgirl og AnnaS ;P

Skortur á kettlingum? (7 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég veit þetta er undarlegt, en getur verið að það vanti beinlínis ketlinga gefins hér í Reykjavík? Á einu ári er ég búin að fá 3 kettlinga gefins og í öll skiptin var fólkið sem ég fékk þá hjá að tala um að það væri mikið hringt og næstum því slegist um þá. Núna er ég orðin kisuamma og er með 5 þriggja vikna orma hérna heima, yndislegar dúllur. Fólk er alltaf að segja hér (og bara almennt) að það sé svo erfitt að losna við grey litlu dýrin og það þurfi stundum að drekkja þeim, lóga og ég...

Hún er að detta í sundur! (8 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Er eðlilegt að læðan manns verði alveg ískyggilega horuð eftir að vera með 5 kettlinga á spena í 2 vikur? Mín var að eignast í fyrsta skiptið og var alltaf mjög grönn fyrir en núna er beinlínis vont að horfa á hana. Beinin standa öll bara út og það er frekar ógeðfellt að klappa henni því maður er bara að klappa beinunum. Fyrstu vikuna var þetta allt í lagi en núna sko .. úff. Ég gef henni vítamín , vatn og gott þurrfóður. Eru þetta ekki bara kettlingarnir sem eru að soga orkuna úr henni? Ég...

Mótmæli vegna landkynningar hryðjuverkastjórnar (10 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þessi texti er tekinn af www.palestina.is Mótmælastaða fyrir framan Grand Hótel vegna landkynningar hryðjuverkastjórnar. Félagið Ísland-Palestína fordæmir þá hryðjuverkastjórn sem situr við völd í Ísrael. Ísraelsríki hefur um áratuga skeið ofsótt Palestínumenn á grundvelli trúarbragða og þjóðernis og svipt þá grundvallarréttindum sínum. Félagið lýsir furðu sinni á þeirri bíræfni ferðamálaskrifstofu ríkisstjórnar Ísraels að efna til kynningar á skemmti- og sólarlandaferðum til landsins á sama...

Daman er kettlingafull! Hjálp! (17 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hæhæ öll. Læðan á heimilinu er kettlingafull. Það er auðvitað bara kúl, en hvernig virkar svona fæðing? Þurfum við að hjálpa? Þarf ég að gera einhverjar sérstakar ráðstafanir? Þarf ég að kaupa eitthvað sérstakt eða fara með hana aukalega til dýralæknis? Öll ráð eru vel þegin. Ég var líka að spá sko.. það eru 2 högnar á heimilinu .. hvort þeir mundu alveg láta hana í friði (þeir eru mjög stríðnir) og líka litlu kettlingana þegar þeir koma. Ég er svo hrædd um að þeir fari bara að leika sér með...

Barn kisur = hræðilegt? (18 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hæ öll. Heyriði, ég var að komast að því að ég er ólétt. Það er auðvitað geðveikt gaman sko, en ég hef svo rosalegar áhyggjur að ég þurfi að losa mig við kisurnar. Ég á 4 ketti og elska þá alla útaf lífinu og get ekki hugsað mér að vera án þeirra. Kærastinn minn þrífur sandinn á meðan ég er ólétt (haha) en ég er bara hrædd um að þeir verði kannski vondir við barnið þegar ég sé ekki til eða þá það fái ofnæmi eða eitthvað. Ef ég passa að kisurnar séu ekki oní barninu og þríf hárin rosa vel...

Pína (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það skín af henni litadýrð og fögur áferð. Gul slikjan eins og blóm yfir grænu grasi. Brúnir hólar og steinar sem gægjast upp úr landslaginu. Hún líður áfram eins og öndin á tjörninni, þó með örlitlum trega. Ég er fegin að hún slapp út en brátt þarf hún að hverfa á vit fiskanna. Bless elsku æla í klósettinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok