Hún er að detta í sundur! Er eðlilegt að læðan manns verði alveg ískyggilega horuð eftir að vera með 5 kettlinga á spena í 2 vikur? Mín var að eignast í fyrsta skiptið og var alltaf mjög grönn fyrir en núna er beinlínis vont að horfa á hana. Beinin standa öll bara út og það er frekar ógeðfellt að klappa henni því maður er bara að klappa beinunum. Fyrstu vikuna var þetta allt í lagi en núna sko .. úff.
Ég gef henni vítamín , vatn og gott þurrfóður. Eru þetta ekki bara kettlingarnir sem eru að soga orkuna úr henni? Ég meina, lagast þetta ekki þegar þeir eru hættir að sjúga? Ef þið vitið það endilega látið mig vita því ég er farin að hafa smá áhyggjur.
Takk - Lilja