Bara svo þú vitir það, hefur SÁÁ mjög takmörkuð fjárráð og þau aukast ekkert þó komi fleiri í meðferð. Þeir vilja auðvitað bara fá fólk sem er veikt af þessum sjúkdóm til meðferðar, þeir vilja ekkert telja fólki trú um að það sé alki eða ekki. Þetta er bara fyrir fólk til viðmiðunar, þeir eru ekkert að reka fólk í meðferð. Trúðu mér, þeir græða EKKERT á því að fleira fólk komi til þeirra, helst af öllu vildu þeir að áfengisvandi væri ekki til.