Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

akarnid
akarnid Notandi frá fornöld 50 ára karlmaður
322 stig

Re: Japanska eða enska?

í Anime og manga fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Japanskt tal með enskum fansubbuðum texta - all the way!

Re: smá spurning-true crime

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
EF þú klárar leikinn með stigin í plús (good cop) þá færðu góða endinn. Annars færðu slæma endinn.

Re: true crime - ps2

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Á hann á xbox, frábær leikur ef þú fílar GTA.

Re: Crimson Skies

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Finn leikur, fínn leikur. Project Gotham 2 og Medal Of Honor líka.

Re: Ecco the Dolphin

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ecco á DC er svo mikið hörmungs drasl að það hálfa væri nóg. Skemmtilegur í svona 5 mínútur þegar mar er að stökkva upp úr sjónum, en missionin eru alveg hræðileg. Mér fannst bara einhvern veginn að þessi leikur væri tímaskekkja. Ecco á Mega Drive var flottur á sínum tíma því hann var ný hugmynd, og svo var allt voða eco-friendly á þeim tíma (1992) en tímarnir breytast víst.

Re: Mike Sickinger kemur til Íslands

í Danstónlist fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Deepchord! Bo! Gott stöff :)

Re: GTA Double Pack...

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Og ég er að spila hana, ligga ligga lái :P

Re: XBox og "straumun"

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Lesa forumin á x-s eða fara á xboxmediaplayer.de. Eða xboxmediacenter.com. Allar nýjar fréttir úr XBMP senunni birtast þar fyrst. Þú ert líklegast að tala um .ts (Tivo Transport Stream) túlk fyrir media playerinn.

Re: Myndir af Gamecube2(Nexus)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Auðvitað er þetta bull. Það væri sjálfsmorð fyrir Nintendo að fara að hæpa þá vél sem tekur við af Gamecube núna, svo snemma. Sony hafa þó verið að hæpa PS3 Cell arkítektúrinn í heilt ár núna, og enn hafa engar myndir birst af næstu kynslóð þeirra. Í 99.99% tilfella eru svona myndir clever fakes.

Re: Árshátíð Dj-a

í Djammið fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Amm, þetta var algert snilldarkveld.

Re: mp3 á heimasíðum?

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Oh joy, delicious sarcasm :)

Re: Ertu Þunglyndur?

í Heilsa fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sætt hjá þér. Góð grein og inniheldur mikið af efni. Hissa er ég á því að ég sé sá fyrsti sem kommentar á þessa grein, 5 dögum eftir skrif. Er fólk feimið við þetta, eða hefur enginn álit á þessu? Líka hefði mátt koma fram hvert fólk getur leitað, finni það fyrir þessum einkennum, og þau séu farin að há því. Fyrst er nú bara til heimilislæknisins á heilsugæslustöðvum. Þetta er gott ráð ef einkennin eru væg, heimilislæknar eru alveg í stakk búnir til að hjálpa fólki með væg þunglyndis - og...

Re: He-Man and the Masters Of The Universe

í Teiknimyndir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Tja ég ólst upp við þetta, og jú þetta var bara það besta á þeim tíma - en þessir þættir hafa bara engan veginn elst vel. Hórfði á einn í fyrra, og það skín í gegn hve lélegt animationið er og mikið notað af sömu elementunum aftur og aftur til að fylla upp í. Minnir mig á Hanna Barbera upp á sitt versta. Hef hins vegar ekki séð þessa nýju þætti.

Re: Sönn Íslensk Sakamál; vændi til viðurværis

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Góð grein, sammála henni í meginatriðum. Vel orðað hjá þér.

Re: Shrek - 2001

í Teiknimyndir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hvaðan hefur þú þær upplýsingar að Shrek sé gerð af Disney? Ég hélt nú að þeir hefðu nú komist upp með alla Disney brandarana af því einmitt að hún hefði verið gerð af stúdíói sem hefðiu engin tengsl við Disney(Dreamworks).

Re: Xecuter Lite 2.2 plus

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hann arro, sem hefur nokkuð oft póstað hérna, er með sölu og ísetningu á svona kubbum. Veit þó ekki hvort hann selur kubbana sér.

Re: Killer Instinct

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Já að sjálfsögðu marr! Ekii sjens að ég ætli að segja að KI sé betri en SoulCal. Bara á þessum tíma var KI bara algert rokk. En þá bara fyrri leikurinn. KI2 var bara alls ekki nógu góður.

Re: Neil Gaiman

í Bækur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég hef sagt það áður og segi það aftur: Neil Gaiman er sá rithöfundur í dag sem hefur hvað mest vald á enskri tungu, og kann að beita henni á áhrifaríkan hátt. Þessi maður er einfaldlega rakinn snillingur, og það er hrein unun að lesa texta eftir hann. Stardust, Coraline, Sandman, American Gods, Neverwhere. Allt þetta er besti skáldskapur sem hefur verið skrifaður undanfarin 20-30 ár að mínu mati. Sniiiiilld.

Re: Xbox Live áskrift í 2 mán. með völdum leikjum

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég var nú að sjá að þeir sem sem kaupa sér Splinter Cell í discount línunni fyrir Xbox (classics línunni) fá glaðning í pakkanum. Öll þessi aukaborð sem hafa verið á Xbox Live og þessum OXM diskum.

Re: Death - Human

í Metall fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nah ekki finnst mér nú það, á þessum tíma (90-91)var bara Florida senan upp á sitt besta og það kom út alveg glás af frumlegu dóti. Entombed og Unleashed frá Svíþjóð, Therion frá Noregi, Cynic frá Flórída, Atrocity frá Þýskalandi og fleira mætti telja. Síðan datt Flórída senan upp fyrir og black metal tók alla athyglina í norrænu extreme metal senunni. Verð nú samt að játa að '91 heyrði ég fyrst í My Dying Bride og fékk þá mun meiri áhuga á slow doomy hluta senunnar - frekar en þessum...

Re: Death - Human

í Metall fyrir 22 árum, 7 mánuðum
1. Atrocity - Todessehnsucht (Longing For Death) 1992 2. Morbid Angel - Blessed Are The Sick 1991 3. Entombed - Clandestine 1991 4. Morgoth - Cursed 1991 5. Death - Human 1991 Ergo - allt besta sjittið kom út 1991 :p

Re: Death - Human

í Metall fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Deff með bestu 5 dauðarokksplötum ever. Alger snilld, og stendur ennþá vel fyrir sínu í dag.

Re: Don Rosa

í Myndasögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þessi maður er rakinn snillingur. Sagan hans af uppruna Jóakims er algert möst fyrir alla sem hafa einhvern tíma lesið Andrés Önd. Hann heldur líka svo vel í stílinn hans Barks, ekki þetta útþynnta rugl sem gefið er út á evrópskum markaði.

Re: Wæ Mý ?

í Heilsa fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Áts. Get sko alveg trúað því að það sé sárt. En þetta gengur yfir.

Re: 10 -11

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Gróft mannréttindabrot? Að vera meinað að versla sér ruslmat úr lágvöruverðsverslun? Tel það nú afar smátt réttindabrot. Verslaðu bara annars staðar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok