Ég var að spá í svona aðgerð fyrir 2 árum. Hætti við vegna þess að ég einfaldlega vill ekki taka neina sénsa á að sjónin verði verri eftirá. Ég er sjálfur með -5 og -4.25. Í sjálfu sér hafa gleraugu ekkert hindrað mig í lífinu, ég hef tekið mikinn þátt í íþróttum með því að nota linsur. Pirrar mig ekkert út á útlitið heldur, mér finnst ég líta mjög vel út bæði með og án gleraugna. Ég er líka áhugaljósmyndari og nota helst ekki gleraugu þegar ég tek myndir heldur linsur, gleraugun pirra mig...