Ég var að horfa á þátt á animal planet um daginn, um fanga í kvennafangelsi í USA sem tóku sig saman og fóru að þjálfa hunda sem höfðu lent í klóm hundafangara sem aðstoðarhunda fyrir fötluð börn. Hundarnir voru mjög vel þjálfaðir hjá þeim, gátu td opnað hurðir, tekið upp hluti sem lágu á gólfinu, og hlýtt allskyns öðrum skipunum. Börnin voru himinlifandi að eignast svona hund, ég held að þeir hafi ekki kostað neitt, því að þetta var allt unnið í sjálfboðavinnu. Ég held að ég fari rétt með...