Ég að leita að hundi sem ég gaf fyrir 4 árum síðan.
Hún heitir Tinna og hún er 8 ára núna ef að hún er lifandi ennþá og er Labrador/Golden blendingur, svört að lit.
Ég gaf hana til Grindavíkur, en ég man ekki hvað konan heitir sem fékk hana heitir né hvar hún hún býr nákvæmlega.

Mig langar bara að vita hvort að hún sé á lífi og þá hvernig hún hafi það, ég sakna hennar ógurlega mikið og mér hefur verið mikið hugsað til hennar undanfarið.

Ef að svo heppilega vill til að þið hafið einhverjar upplýsingar um hana Tinnu, endilega látið mig vita.

Kærar þakkir
Zaluki
———————————————–