Ég var að spá í það hvort að ykkar börn hafi skriðið “eðlilega”.
Stelpan mín lá á maganum og dró sig áfram með höndunum, svona eiginlega eins og hálfgerður ormur, en náði samt ótrúlegum hraða og gaf þeim sem skriðu á fjórum fótum ekkert eftir.
Og eins hvað þau voru gömul þegar að þau fóru að skríða. Ég man ómögulega hvað stelpan mín var gömul, og ég er að bíða spennt eftir að gaurinn minn fari að skríða hér um allt :)<br><br>——————————
“Work like you don't need the money, love like you've never been hurt and dance like no one else is watching”
———————————————–