Það eru rosalega margir búnir að spá í hvað málið er með stelpur og klósettið á djamminu. Hvað það sé svona spennandi að gerast þar inni, eru einhverjir “kinky” hlutir í gangi inni á klósett stallinum þegar að tvær eða fleiri stelpur fara inn í einu að pissa ? Hví eru þær svona ROSALEGA lengi oft!! Ég hef einmitt verið að spá í þessu líka sko, en í hina áttina sjáðu til. Strákar nota þessa pissustanda, standa allir upp við vegg og spræna, sumir horfa eflaust á sprellann á gæjanum við hliðina og eru að vega og meta í laumi, en þeir fara aldrei saman inn á stallinn án þess að vera hræddir um að vera vændir um hommaskap. (karlmenn sko!!)
En sannleikurinn er sá, að það er ekkert perralegra að gerast inni á stallinum hjá okkur gellunum frekar en gengur og gerist hjá ykkur gæjunum.
Það er náttúrulega allskyns “girly” dót í gangi þarna inni, við erum að td. að lána hvor annari varalit og þessháttar dæmi. Björgum hvor annari um túrtappa ef að þannig á stendur, eða þá förum á trúnó um gæjann sem var svo vondur við okkur, svona rétt á meðan við erum að bíða eftir að komast loksins inn að pissa. En stundum þegar að það er komið að okkur að pissa er samtalið bara alls ekki búið þannig að við förum bara tvær saman inn að pissa, auðvitað! Og auðvitað eins og gengur og gerist með stelpur þá þurfum við að tala svolítið mikið og þessvegna erum við svona lengi inni á klósettinu, þangað til að gellan sem er næst í röðinni fer að sparka og berja í hurðina þannig að maður drattast nú vanalega út eftir að hafa sýnt smá “rebel” og verið 2 mín. í viðbót :)
Ég er líka búin að finna það út að það er MJÖG nauðsynlegt fyrir strákana að við séum með þetta klósett dæmi alltaf í gangi, þegar við erum orðnar vel blekaðar og erum að mála okkur inni á klói þá náttúrulega fer stundum eitthvað úrskeiðis, en við erum oft hreinlega alltof fullar til að fatta það! Eða þá að pilsið er girt ofan í að aftan, eða þá að það stendur einhver miði alveg fáránlega upp úr hálsmálinu, þá gætu allir fattað að maður er í fötum úr Hagkaup! (sem er í lagi á meðan enginn veit það) Hinar stelpurnar inni á klósetti benda manni lang oftast á svona útlitsgalla og laga mann smávegis til, svo er það náttúrlega líka til bóta að þær láni manni túrtappa, hvaða gæji vill dansa við gellu sem er með tvöfaldann Gullfoss streymandi úr klofinu? Svo þar að auki eru klósettin oft eini staðurinn þar sem að maður getur talað í símann í friði á þessum blessuðu skemmtistöðum .. og maður vill nú vera í sambandið við umheiminn ekki satt :)
Þannig að ég læt ykkur dæma um það .. er þetta kúltúr eða “stelpusýki” ?

Svo fara náttúrulega stundum fram einhverjir hlutir þarna inni sem ekki eru taldir upp að ofan, en það má ekki kjafta frá þeim vitanlega.
———————————————–