Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ZabO
ZabO Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
216 stig

Ísland - England 5. júní 2004 (10 álit)

í Stórmót fyrir 20 árum, 1 mánuði
Jæja elsku hugar, þá er komið að því. Það er ekki á hverjum degi sem við Íslendingar mætum stórþjóð og stjörnum eins og landsliði Englendinga. Þvílíkt og annað eins! Maður er farinn að heyra að Íslendingar ætli að fjölmenna á leikinn, og ég er sko einn af þeim. Ég keypti mér miða um daginn og get ekki beðið! Mér datt í hug að setja inn nokkra landsliðs upplýsingar og linka fyrir þennan landsleik því það er alveg nauðsynlegt að skella sér, það voru keyptir 4000 miðar og það er einhver slatti...

Pöntunarkerfi á netinu fyrir hárgreiðslustofur (7 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Góðan daginn… Er einhver sammála mér að það bráðvantar almennilega hárgreiðslustofu með pöntunarkerfi á netinu sem virkar?? Ég veit um tvær stofur sem eru með þetta, www.zoo.is og www.kritik.is. Samt finnst mér ekki nógu gott þarna því ef að tíminn sem maður pantar er ekki laus þá fær maður að vita það löngu seinna. Mér finnst að það þurfi einhver hárgreiðslustofa að taka af skarið og opna flotta síðu með pöntunarkerfi þar sem maður getur t.d. valið uppahalds klipparann sinn og séð hvenær...

Bestu og lélegustu pikk-up línurnar (13 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Var á einhverju flakki á netinu og rakst á þetta á http://love.msn.com/personals/article1.asp: Margar konur eru vanar því að fá pikk-up línur a börum, bókabúðum og jafnvel súpermörkuðum. Þeir bregðast mismunandi við, gleðjast eða brjálast, en það skiptir máli hvað er sagt við þær. Bestu línurnar eru þær sem sýna að gaurinn er traustur, einlægur - og tengdamamman vildi ólm hitta hann. Verstu línurnar eru oftast þær sem sýna að gaurinn er dónalegur. Hérna koma nokkrar bestu (og lélegustu)...

Er sjálfstæðismönnum sama um láglaunafólk? (27 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Vegna mikillar umræðu um fátækt í landinu undanfarið finn ég mig knúinn til að hripa niður nokrar línur til að svara ásökum hinna ýmissa manna. Einhver sagði: “Já en þetta er það ríkt land að það er auðveldlega hægt að laga hag þessara 20 þús manns án þess að allt fari í rúst hjá meðal og hátekjufólki!” Ég get verið sammála þessum að nokkru leiti, en er þá ekki góð byrjun að lækka vsk. á matvælum og öllu því sem kemur virðisskattsaukaþrepinu. Sjáðu eitt fyrir þér: fólk sem hefur litlar...

Upp með Samfylkinguna (57 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Samfylkinginn er sá flokkur sem ég er búinn að ákveða að kjósa í vor. Það eru nú ekki mörg mál sem skipta mig máli, nema kannski að mér finnst kominn tími til að kona stjórni landinu, bara af því að enginn kona hefur áður setið í stól forsætisráðherra. Mér er annt um jafnréttismál, og þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Ég treysti Ingibjörgu Sólrúnu til þess að ráða jafn margar konur og karla til opinbera starfa. Ég veit að hún mun beita sér fyrir því að ef tvær umsóknir liggja fyrir um starf,...

Skattaparadísin Ísland (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Eyjan okkar góða er á góðri leið að vera kjörinn kostur í augum erlendra fjárfestra. Það þykir sannað hve hagkvæmt það er að fá erlend fyrirtæki til landsins, en slíkt skilar meiri hagvexti til lengri tíma litið sem bætir lífskjör almennings. Í því samhengi er oft gott að líta til nágranna okkar á Írlandi. Þegar sem best lét í Írlandi var tekjuskattur á fyrirtæki um 10%. Þetta lokkaði til sín fyrirtæki og nú hefur gamla fátæktarbælið þróast í lífskjör sem voru betri en meðaltal í ESB. Dublin...

Mislukkuð kosningabarátta Samfylkingunnar (47 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Það er nokkuð ljóst að Ingibjörg og Össur hafa slegið feilhögg. Þessi fáranlega kosningabarátta Samfylkingarinnar sem leggur áherslu á það að breyta breytinganna vegna, kjósa Samfylkinguna aðeins vegna þess að það er kona í framboði því það hefur engin kona stjórnað landinu. Ég segi bara eins og Hulda Þórisdóttir hefur áður sagt á www.tikin.is; “Samfylkingin lítur ef til vill ekki á það sem lið í stjórnun landsins að vera iðnaðarráðherra, umhverfisráðherra, heilbrigðisráðherra,...

Á vinstri stjórn eftir að virka? (29 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Ég var að enda við að horfa á endursýnt kastljós þar sem allir stjórnmálaleiðtogarnir (þá á ég við þá sem eru í forustu flokksins) leiddu saman hesta sína og ræddu um ýmis mál. Því miður náði ég ekki byrjunni en ég kom inn í almenna menntamálaumræðu. Þar var Ingibjörg Sólrún eitthvað að kvarta yfir ástandinu í framhaldsskólum, og ég held að hún hafi verið kveðin í kút af Davíði. Eins með ESB-málið þá var hún sú eina sem vildi inn. Halló! Allaveganna, það sem mér fannst athyglisverðast var...

Uglan er fallin (6 álit)

í Flug fyrir 21 árum
Þvílík rjómablíða í gær og í dag. Í gær eftir skóla skellti ég mér niður á flugvöll og tók smá hring. Þvílíkt gaman eins og venjulega, en ég fékk bara PPL síðasta sumar en er bara búinn að fljúga á svona 2 mánaða fresti. Þegar ég lenti í gær, var búinn að fljúga FTI sem er nattúrulega lúxus rella, sá ég að þeir voru búnir að sprauta Uglunna í litum Íslandsflugs!!! Og ekki nóg með það þá er búið að skipta um stafi og heitir uglan núna TF-FTP! Ég get allaveganna sagt fyrir mitt leiti að ég á...

Skoðannakannanir (13 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Nú í dag birtist á mbl.is niðurstöður úr skoðannakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði. Þar fær Samfylkingin 37,1% en Sjálfstæðisflokkurinn 33,1%. Fylgi hinna flokkana er svipað, nema hvað frjálslyndir halda áfram að bæta í, komnir yfir Vinstri-græna með 8,9% á meðan Vinstri-grænir eru með 8,7%. Framsóknarflokkurinn er hins vegar enn að tapa fylgi með 10,3% fylgi nú. Ég sem Sjálfstæðismaður fékk veikt fyrir hjartað þegar ég sá fyrirsögnina á mbl.is, en róaðist aðeins þegar ég...

Hvað á Pizzan að heita? -samkeppni (40 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ hæ! Ég er að vinna á litlum pizzastað, og ég er búinn að finna upp alveg geggjaða pizzu. Ég sjálfur hef alltaf verið frekar matvondur, og gat aldrei sett neitt á pizzur nema kannski pepperóni, skinku, nautahakk, beikon? Þetta er allt frekar óhollt, (nema þú sért á kolvetnissveltiskúrnum) þannig að mig langaði til að prófa eitthvað hollara. En ojbara, grænmetispizzurnar eru allar ógeðslegar! Laukurinn, þistilhjörtun. Þetta höfðaði ekki til mín. Þannig að ég setti saman helling af pizzum í...

En af hverju erum við á listanum? (18 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ýmsir einstaklingar virðast enn ekki skilja hvers vegna Ísland á heima á lista yfir þau lönd sem styðja tafarlausa afvopnun Íraka. Vegna þess langar mig til að koma hér nokkrum punktum á framfæri til að skýra hvers vegna ég skil afstöðu ríkisstjórnarinnar! Í fyrsta lagi erum við ekki að senda okkar fólk í hernað. Við erum að gefa Bandamönnu leyfi til að fljúga yfir okkar flugumsjónarsvæði og að nota Keflavíkurflugvöll. Einnig ætlum við að taka þátt í uppbyggingu í Írak. Nú er ljóst að margir...

Afmælisflug yfir Ísland á föstudag! (9 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hóhó; Þetta segir á mbl.is í dag: Í ár er liðin öld frá því Wright-bræður fóru í fyrstu flugferðina árið 1903. Þetta afrek unnu þeir í Kitty Hawk í Norður- Karólínufylki í Bandaríkjunum. Fyrsta flugs félagið, félag áhugamanna um flugmál, mun minnast þessa flugafreks með ýmsum hætti á þessu ári. Fyrsti viðburðurinn verður útsýnisflug með breiðþotu frá flugfélaginu Atlanta næstkomandi föstudag. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að farið verði frá Keflavíkurflugvelli og stefnt inn á hálendi...

Samræmd stúdentspróf -eitt heitasta kosningamálið? (19 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu 8. janúar s.l. segir m.a. "Fyrsta samræmda stúdentsprófið verður haldið þann 8. janúar árið 2004. Þá verður einungis prófað í íslensku en árið 2005 verða einnig haldin samræmd stúdentspróf í stærðfræði og ensku. [...] Tilgangur samræmdra stúdentsprófa er m.a. að veita nemendum, framhaldsskólum og fræðsluyfirvöldum upplýsingar um námsárangur nemenda og námsstöðu í þeim námsgreinum þar sem haldin eru samræmd stúdentspróf. Jafnframt er tilgangur prófanna...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok