Góðan daginn…

Er einhver sammála mér að það bráðvantar almennilega hárgreiðslustofu með pöntunarkerfi á netinu sem virkar?? Ég veit um tvær stofur sem eru með þetta, www.zoo.is og www.kritik.is. Samt finnst mér ekki nógu gott þarna því ef að tíminn sem maður pantar er ekki laus þá fær maður að vita það löngu seinna.

Mér finnst að það þurfi einhver hárgreiðslustofa að taka af skarið og opna flotta síðu með pöntunarkerfi þar sem maður getur t.d. valið uppahalds klipparann sinn og séð hvenær hann á lausann tíma og tekið þann tíma frá. Þetta yrði semsagt gagnagrunnstengt við pöntunarkerfið á stofunni sjálfri þannig að allt gangi vel.

Hvað finnst ykkur???